Svifvængsmaður fannst eftir leit við Mýrdalsjökul

Þyrla LandhelgisgæslunnarMyndin tengist ekki fréttinni beint
Mynd: Stjórnarráðið/Hari
Viðbragðsaðilar voru kallaðir út eftir að tilkynning barst um flugslys sunnan Mýrdalsjökuls um klukkan 11 í dag.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi lenti maður á svifvæng í vandræðum og varð viðskila við samferðafólk sitt. Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir voru sendar á vettvang til leitar- og björgunaraðgerða.
Maðurinn fannst og var hífður um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Tildrög atviksins eru nú til rannsóknar en lögregla segir ekki unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.