Svavar Halldórsson, stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur og flokksbundinn Sjálfstæðismaður, segir að afstaða síns flokks um að vera á móti aðildarviðræðum við Evrópusambandið sé frávik frá sambærilegum stjórnmálaflokkum í Evrópu, sjálfur ætli hann að kjósa já við aðildarviðræðum næstkomandi laugardag.
Svavar segir flokkinn sinn frávik: „Ég studdi þetta ferli þá og ég styð það núna“