„Bæði spákortin sýna 942 hPa djúpa lægð. Til samanburðar þá var sú sem gekk hér yfir í síðustu viku 934 hPa en sú setti októbermet.“
Einar rýnir sig rauðeigan í spákort nú sem fyrr og ber saman. Spákort ECMWF sýnir dúpa lægð suðvestur af Reykjanesi eftir viku og það sama gerir spá AIFS sem er hermigreindarspá úr ranni ECMWF. Bæði sýna þau það sama. Einar segir tvennt í þessu athyglisvert.
Rétt að hafa augun á þessum spám
„Í fyrsta lagi er ekkert óvenjulegt að sjá einhverjar tíu til fimmtán daga spár sýna einhverjar svakalegar lægðir sem svo hverfa og sjást ekki meir. En í þessu tilviki hefur þessi myndun dúkkað upp aftur og aftur á þessum tiltekna degi.“
Einar ítrekar að hann setji yfirleitt ekki fram það sem Trausti Jónsson kalli skemmtideild reiknimiðstöðvanna, en þarna eru spár með sama hætti.
„Þegar kemur að meiriháttar veðurkerfum langt fram í tímann, og þetta er meiriháttar, horfum við á þessa stóru megindrætti. Spárnar verða alltaf betri og betri. Þær eru orðnar glettilega góðar.“
Einar bendir á að reiknaðar spár um stóru lægðina sem við upplifðum í síðustu viku hafi verið býsna nákvæmar löngu áður en hún skall á. Hitt atriðið, til hliðar við þessar hefðbundnu veðurspár með flóknum eðlisfræðilegum líkönum í stórum tölvum, þetta eru þungir og miklir reikningar, er keyrt á hermigreind.
Hermigreindarspá orðin glettilega nákvæm
„Segjum að þetta gangi eftir, þá er ótrúlegt að hermigreindarspáin geti spáð svona nákvæmlega langt fram í tímann,“ segir Einar og líkir hermigreindarspánni við skáktölvu, hún læri inn á endurtekningar.
Það má alltaf búast við lægðum á þessum árstíma og Einar segir að þetta þurfi ekki að ganga eftir. Efniviðurinn í þessa lægð er enn fjarlægur, rótin er enn vestur af Alaska og hún á eftir að ferðast yfir þvera Norður-Ameríku.
„Maður sér hvað veldur þessu, sem er samspil ólíkra loftmassa og skarps lægðardrags í háloftunum sem dregur sig yfir heit miðríki Bandaríkjanna, sem veldur þessari dýpkun úti á Atlantshafinu.“
Einar segist eftir langa starfsævi vera farinn að kannast við þetta, sama sagan endurtaki sig í sífellu. Hvað veturinn hins vegar varðar, og þá erum við að tala um desember, janúar og febrúar, jafnvel mars, þá er hann undir hattinum á Ofur-El Ninjo.
Stefnir í rólegan en kaldan vetur
„Þetta er þegar norðurhjarinn hefur kólnað og er kominn í vetrarástand. Þá sýna svona spálíkön langt fram í tímann ótrúlega mikið og gott samræmi.“
En þessi spálíkön eru keyrð á níu ólíkum tölvum víða um heim og þær bornar saman. Þær benda allar í sömu áttina; gert er ráð fyrir því að meginlægðabrautin liggi sunnarlega þvert yfir Bandaríkin og þá yfir til meginlands Evrópu.
„Við verðum að miklu leyti í skjóli fyrir lægðunum að jafnaði. Það er skortur á almennilegum vetri í Norður-Kanada sem leiðir til þess að það verður háþrýstingur yfir Grænlandi. Það býður upp á ríkjandi norðanáttir.“
Að sögn Einars er óvissa með hitann almennt í vetur en í þrálátum norðanáttum er yfirleitt kalt.