Suddalega slappt Stjörnustríðsslor - Vísir

Suddalega slappt Stjörnustríðsslor - Vísir

Suddalega slappt Stjörnustríðsslor - Vísir

Leikstjóri kvikmyndarinnar er Jon Favreau, sem hefur áður leikstýrt myndum á borð við Elf (2003), Iron Man (2008) og Jungle Book (2016), en hann er jafnframt maðurinn á bakvið sjónvarpsseríuna The Mandalorian. Favreau framleiðir kvikmyndina með Disney og skrifar handrit hennar með Dave Filoni, forseta og listræns stjórnanda Lucasfilms. 

Leikhópurinn er skipaður Pedro Pascal, Jeremy Allen White, Sigourney Weaver, Jonny Coyne, Martin Scorsese og Brendan Wayne. Þá má nefna að sænska kvikmyndatónskáldið Ludwig Göransson sér um tónlistina.

Stjörnustríð: Mandalorian og Grogu segir frá mannaveiðaranum Mandalorian (Pascal/Wayne) og lærlingi hans, máttuga barninu Grogu, sem fá það verkefni að bjarga Rotta (White), syni Jabba jöfurs, í von um það geti hjálpað Nýja lýðveldinu að hafa uppi á gömlum herforingja (Coyne) hins fallna keisaradæmis.

Stjörnustríð: Mandalorian og Grogu var frumsýnd hérlendis 21. maí og er sýnd í Laugarásbíói, Sambíóunum og Smárabíói.

Ris og fall Stjörnustríðs

Mandalorian og Grogu er þrettánda bíómyndin í fullri lengd í Stjörnustríðsbálknum en hann teygir sig aftur til áttunda áratugar síðustu aldar. Upprennandi leikstjórinn George Lucas hafði fengið dræmar viðtökur við leikstjórnarfrumraun sinni, THX 1138 (1971), en fylgdi henni eftir með kómedíunni American Graffiti (1973) sem hlaut gríðarlega góðar viðtökur. Velgengnin gerði honum kleift að selja Twentieth Century Fox hugmynd sína um geimóperu í fjarlægri vetrarbraut sem fjallaði um átök góðs og ills og var innblásin af samúræjamynd eftir Akira Kurosawa.

George Lucas með Svarthöfða á góðri stundu.MYND/AP

Lesendur vita sennilega flestir hvað gerðist eftir það. Stjörnustríð kom út árið 1977 og markaði upphafið að einni vinsælustu, tekjuhæstu og áhrifamestu kvikmyndasyrpu bíósögunnar. 

Ekki nóg með það heldur gat serían af sér fjölmargar sjónvarpsþáttaraðir, tölvuleiki, bókmenntir af ýmsu tagi, skemmtigarða og ógrynni annars konar varnings. Næstu áratugina óx aðdáendahópur seríunnar og festi Stjörnustríð sig um leið í sessi sem risi í dægurmenningunni. 

George Lucas var þó ekki búinn að ljúka sér af með Geimgengilsfjölskylduna þannig hann leikstýrði forsöguþríleik um Anakin Geimgengil sem kom út á árunum 1999 til 2005. Lucas spólaði þar rækilega yfir sig því þríleikurinn fékk herfilega dóma sökum arfaslapps leiks, þvældrar sögu og ofnotkunar á ljótum tæknibrellum. 

Forleiksþríleíkurinn fjallar um það hvernig Anakin Geimgengill varð að Svarthöfða.

Harkaleg viðbrögð áhorfenda og hörð gagnrýni (sem var á köflum ósanngjörn) áttu þátt í því að Lucas varð þreyttur á Hollywood og stórmyndagerð. Hann ákvað því að selja Lucasfilm frá sér til Disney árið 2012 á rúma fjóra milljarða Bandaríkjadala.

Sjá einnig: Fær yfir 500 milljarða króna fyrir Lucasfilm

Aðdáendur Stjörnustríðs voru spenntir fyrir kaupum Disney á Lucasfilms og vonuðust eftir því að samsteypan myndi kveikja nýjan neista í sagnabálkinum. Þeir fengu það sem þeir vildu og meira en það: Disneymaskínan tók Stjörnustríðsvörumerkið og byrjaði strax að kreista út djúsinn. Fljótlega eftir kaupin tilkynnti Disney um framleiðslu nýs þríleiks, sem myndi fylgja eftir upprunalegu myndunum, til viðbótar við stakar myndir úr Stjörnustríðsheiminum.

Samklipp af plakötunum þremur úr framhaldsþríleiknum.

Þriðji þríleikurinn kom svo út á árunum 2015 til 2019 og samhliða því tvær hliðarmyndir, Rogue One (2016) og Solo: Stjörnustríðssaga (2018). Viðbrögðin við nýju myndunum voru missterk en margir gallharðir aðdáendur voru ósáttir við ýmsar drastískar ákvarðanir. 

Ótti í efstu lögum Disney um að rugga bátnum of mikið leiddi til þess að lokamynd þríleiksins, Upprisa Geimgengils, einkenndist af miklum stúdíóáhrifum, fáránlegri fléttu og nostalgíurúnki. Lokamyndin var svo slöpp að hún virtist hreinlega drepa áhuga margra á Stjörnustríði.

Sjá einnig: Hin vonlitla leit að næstu Star Wars-vímunni

Á sama tíma byrjaði Disney með streymisveituna Disney+ og nýtti hana til að framleiða leikna þætti um ýmsar persónur úr myndabálknum og hliðarafurðum hans. Fyrsta serían sem kom þar út var geimvestrinn The Mandalorian sem gerist fimm árum eftir fall keisaraveldisins og fjallar um ævintýri mannaveiðarans Mandalorian og litlu verunnar Grogu, sem er jafnan kölluð Baby Yoda af aðdáendum.

Mandalorian og Grogu er þrettánda Stjörnustríðsmyndin í fullri lengd og fjallar um enn eitt ævintýri þeirra félaga.

Þættirnir voru ferskur andblær inn í þá neikvæðni sem hafði ríkt í kringum Stjörnustríðsheiminn, innihéldu skemmtilegar persónur og góða heimssköpun. Næstu árin eftir það lagði Disney allan fókus á sjónvarpsseríur með æði misjöfnu móti.

Nú er hins vegar loksins komin ný Stjörnustríðsmynd, sú fyrsta í sjö ár og sú fyrsta síðan Upprisa Geimgengils fór langleiðina með að drepa áhuga margra á seríunni. Stjörnustríð: Mandalorian og Grogu er beint framhald af fyrstu þremur seríum The Mandalorian og heldur áfram sögu félaganna tveggja.

Eins og langur sjónvarpsþáttur

Sjónvarpsþættir sem rata á stóra skjáinn eru ekki nýtt fyrirbæri. Oft eru gerðar kvikmyndir upp úr gömlum sjónvarpsþáttum en svo hafa í gegnum tíðina komið út myndir sem fylgja beint eftir sjónvarpsþáttum. Gott dæmi eru X-Files-myndirnar tvær og fyrsta kvikmyndin um Svamp Sveinsson en í þeim tilfellum tókst vel að taka stökkið úr sjónvarpi á hvíta tjaldið.

Líkt og margt nýtt Stjörnustríðsefni er myndin gruggug og gervileg.

Gerð slíkra mynda gefur stúdíóum bæði tækifæri á að koma dyggum aðdáendum úr sófunum í bíóhúsin og segja umfangsmeiri og epískari sögu á stóra skjánum. Markmið Disney með gerð Mandalorian og Grogu virðist helst vera að að kveikja aftur áhuga fólks á Stjörnustríðsmyndum enda er von á fleirum á næstu árum.

Kvikmyndin ber þess merki að vera byggð á sjónvarpsþáttum og tekst illa að brjótast undan því formi. Fyrir það fyrsta virðist myndin saumuð saman úr nokkrum þáttum af óútgefinni fjórðu seríu Mandalorian sem gerir að verkum að sagan er verulega kaflaskipt og taktur hennar dettur reglulega niður. 

Stærðargráða sögunnar hæfir hvíta tjaldinu einnig illa. Annars vegar er lítið undir fyrir persónur myndarinnar þannig áhorfendum er nokk sama um hvað gerist. Hins vegar virðist streymisveituslikjan föst á myndinni vegna gruggugrar lýsingar, gervilegs útlits og lélegra tæknibrellna.

Áhorfendur mataðir með leiðindum

Mandalorian og Grogu hefst á sígildum gulum upphafstexta þar sem kemur fram að illa keisaraveldið sé fallið og að Nýja lýðveldið leiti markvisst uppi fyrrverandi liðsmenn keisaraveldisins til að koma í veg fyrir endurreisn þess.

Áhorfendum er strax kastað inn í hasarinn þar sem Mandalorian er að elta uppi ónefndan og harla ómerkilegan óþokka sem hefur komið sér upp einhvers konar lénsveldi. Óstöðvandi mannaveiðarinn dritar niður stormsveitarmenn, sprengir upp AT-AT-vélar og lýkur við verkefni sitt.

Eini tilgangur þessa upphafskafla virðist vera að koma því til skila að Mandalorian vinni við að elta uppi illmenni og sé líka einstaklega fær í því. Búturinn er alveg ótengdur restinni af framvindunni og virkar eftir á að hyggja algjörlega óþarfur.

Áhorfendur þurfa að horfa á endalaust uppfylliefni af ferðalögum og fundum Mandalorian sem bæta litlu við söguna eða persónurnar.

Sagan byrjar raunverulega þegar Mandalorian fær það verkefni að aðstoða Hutt-tvíburasystkinin við að bjarga bróðursyni þeirra, skylmingarþrælnum Rotta, úr haldi í skiptum fyrir dýrmætar upplýsingar sem þau búa yfir.

Sagan hljómar kannski ekkert hræðilega á pappír nema hvað áhorfendur þurfa að horfa á söguhetjurnar tvær ferðast frá A til B til C til þess eins að hlusta á leiðinlega og endurtekningarsama upplýsingagjöf. 

Nánast allt tal persóna í myndinni er nýtt til að mata áhorfendur með upplýsingum, oft einhverju sem liggur í augum uppi. Sjaldan ef nokkurn tímann spjalla tvær persónur í myndinni um hluti sem tengjast ekki sögufléttunni.

Grogu og Mandalorian njósna um bækistöðvar illmennanna.

Burtséð frá leiðinlegu handriti er persónusköpun í myndinni engin. Hetjurnar tvær taka ekki út neinn þroska gegnum söguna eða öðlast einhvern nýjan lærdóm. Áhorfendur sem koma nýir að skjánum verða heldur einskis vísari um félagana tvo. Hvaða gaurar eru þetta, hvað sameinar þá og hvar er núningurinn í sambandinu? Ég veit það ekki.

Stærstur hluti myndarinnar er undirlagður hasarsenum þar sem Mandalorian lúskrar á óþokkum eða berst við skrímsli. Stjörnustríðsheimurinn er fullur af skemmtilegum furðuverum en í myndinni þarf Mandalorian að kljást við óvenjumörg skrímsli sem eru ansi illa tölvugerð. Áhorfendur sjá aldrei andlit mannaveiðarans og þurfa því að horfa á mann með hjálm glíma við gervileg skrímsli. Skiljanlega dempar það spennuna og gerir manni erfiðara fyrir við að detta inn í myndina.

Lélegur leikur, innantómar vísanir og góður Grogu

Leikurinn í kvikmyndinni er líka heilt yfir ansi ósannfærandi. Sirka níutíu prósent af hlutverki Pedros Pascal í myndinni er talsetning enda er karakterinn alltaf með hjálm á sér. Pascal leikur karakterinn með tilfinningalausri og mónótónískri rödd þannig maður á erfitt með að hrífast með honum. Sá sem leikur líkamshluta persónunnar er Brendan Wayne og er svosem lítið hægt að kvarta yfir honum.

Sigourney Weaver fær úr litlu að moða.

Hvað hina leikarana varðar fær Sigourney Weaver örfáar ómerkilegar senur, Jonny Coyne er bærilegur sem óeftirminnilegur óþokki og bestur af öllum er leikstjórinn Martin Scorsese sem skýtur upp kollinum sem taugaveiklaður kokkur með fjórar hendur. Verstur af öllum er hins vegar Jeremy Allen White sem var ekki að hugsa um neitt nema launatékkann þegar hann talsetti skylmingarþrælinn Rotta.

Rotta er birtingarmynd þess versta við Stjörnustríð: illa leikin gervileg fígúra sem þjónar fyrst og fremst því hlutverki að vísa í gömlu myndirnar. Áður en Rotta birtist á skjánum í myndinni er búið að segja áhorfendum að hann sé sonur Jabba jöfurs og þegar hann birtist loksins tönglast hann á því að hann sé ekkert eins og faðir sinn. Endurtekið efni í mynd og hljóði. 

Rotta er skylmingarþræll sem þráir að komast úr skugga föður síns heitins.

Hugmyndin um risavaxna snigilsveru með stælta magavöðva er líka svo innilega absúrd þó þetta sé barnamynd sem gerist í geimnum. Maður sér fyrir sér einhvern handritshöfundanna á hugmyndafundi: „Hvað með að taka feita risavaxna snigilinn og gera hann ýkt massaðan?“ 

Maður hélt kannski að Disney hefði lært af framhaldsþríleiknum að það er ekki hægt að mjólka sömu kýrnar endalaust en svo er greinilega ekki. Hér fá áhorfendur vísanir í Jabba jöfur og höll hans og það er meira að segja kominn nýr Sarlacc-pyttur nema með vatnsverum og risavöxnu, hvítu snákaskrímsli (sem er reyndar mjög töff). Allar þessar vísanir eru þó síðri en frummyndirnar.

Grogu með Anzellan-verunum sem eru litlir verkfræðingar.

Þá á enn eftir að gera hinni söguhetju myndarinnar skil, máttuga barninu Grogu (uppnefndur Baby Yoda því þeir tilheyra sömu tegund), en hann er snúin persóna að því leyti að hann talar ekki og er í raun lítið barn. 

Besti hluti myndarinnar kemur í seinni hlutanum þar sem Mandalorian særist og Grogu þarf að bjarga málunum. Við tekur langur kafli þar sem áhorfendur fylgjast með Grogu ráfa um ókunnugan frumskóg í leit að lausnum. Þó þessi þögli kafli sé skemmtilegur þá stingur hann algjörlega í stúf við restina af myndinni og ímyndar maður sér að hann hefði virkað miklu betur sem stakur sjónvarpsþáttur. Að honum loknum byrjar hasarinn svo auðvitað á ný.

Það þarf ekki að hafa mikið fleiri orð um myndina nema aðeins um lokahlutann. Aðstandendur myndarinnar standast þar ekki mátið við að láta hinar sígildu X-vængja-vélar bjarga deginum enn einu sinni. Þá er táknrænt að Dave Filoni, handritshöfundur og heilinn á bak við þróun Stjörnustríðs síðustu árin, troði sér þar í smáhlutverk eins flugmannsins og fái að vera með í sinni eigin ömurlegu sögu.

Niðurstaða

Disney hætti við að gera fjórðu seríuna af The Mandalorian og ákvað í staðinn að búa til myndina Mandalorian og Grogu um þá félaga. Kvikmyndinni tekst þó ekki að losna við sjónvarpsstimpilinn því sagan virðist saumuð saman úr nokkrum þáttum sem gerir framvinduna mjög taktlitla. Um leið minnir myndin á langan, teygðan og leiðinlegan þátt þar sem lítið markvert gerist og lítið situr eftir.

Mandalorian og Grogu hefði verið frábært tækifæri til að segja epíska sögu um tvo ástsæla karaktera, kanna samband þeirra og þróa sem persónur en svo var ekki gert. Í staðinn var einblínt á gruggugar hasarsenur, klisjukennd samtöl og tilvísanir í forna frægð.

#slappt #stjörnustríðsslor #suddalega #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262888942d/suddalega-slappt-stjornustridsslor

📰 Aðrar fréttir

Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
📅 15.10.2026 👁️ 1
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
Varnarmálaráðuneyti Ástralíu hefur hafið rannsókn á því hvernig falin myndavél rataði í klefa um borð í einu skipa sjóhersins.Ábending um að myndavéli...
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
📅 15.10.2026 👁️ 1
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
Írski rithöfundurinn Sally Rooney segist vera tilneydd til að taka bækur sínar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við samtökin Palestine Actio...
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
📅 15.10.2026 👁️ 1
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
Katie Zacharia does not appear to be registered to the legal bar in any state where she has lived.
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
📅 15.10.2026 👁️ 2
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
Veðurviðvaranir eru nú allar gular en enn þá er norðan- eða norðvestanhríð í þeim landshlutum þar sem viðvaranir gilda.Á Vestfjörðum er slæmt skyggni ...
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
📅 15.10.2026 👁️ 1
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
Livestreaming the execution of Nidal Hasan "will taint the honor of the military that employs it, and a nation that allows it," 72 former officers sai...
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
📅 15.10.2026 👁️ 2
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti nýverið að bjóða upp á tvær nýjar námsleiðir við skólann. Það verður boðið upp á diplómu- eða meistaranám í ...
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gaf sér tíma til að mæta í viðtal hjá Piers Morgan. Þar var fjallað um takmarkanirnar á Starlight-tækn...
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
📅 14.10.2026 👁️ 5
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
A working is named animal of the year for hunting out an invasive marine creature, the carpet sea squirt.
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
Vegagerðin setur á óvissustig og tók hún gildi klukkan tíu í kvöld. Óvissustig þýðir að veginum gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Einnig eru Þrö...
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Strönd...
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
Lyfjafyrirtæki þurfa að sækja um markaðsleyfi í öllum ríkjum þar sem til stendur að setja lyf á markað. Mikill fjöldi nýrra sérhæfðra lyfja hefur komi...
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
Breskur maður á fertugsaldri hefur verið handtekinn eftir að hafa fróað sér í lest, meðal annars fyrir framan konur, í samanlagt 13 klukkutíma. Maðuri...
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
📅 14.10.2026 👁️ 5
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
Reform says all of those people filmed by ITV are under investigation having resigned or been suspended.
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
📅 14.10.2026 👁️ 5
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
Gestir á kaffihúsi einu í Kópavogi eru misvel upp aldir en allir jafn velkomnir, hvort sem þeir ganga á tveimur jafnfljótum eða fjórum fótum. Á kaffih...
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
📅 14.10.2026 👁️ 5
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
Art of Play says its staff have been threatened after the singer complained online about how she was treated.
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
Saurora Grace er 32 ára kona frá Manchester í Englandi. Hún starfar sem svokallaður kynlífsstaðgengill eða sex surrogate, einstaklingur sem aðstoðar f...
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
Valhöll hefur um áratugaskeið verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Alva capital og flokkurinn undirrituðu kaupsamning um húsið í febrúar...
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
„Ég og maðurinn minn erum 1 af 6. Við erum eitt af þeim pörum sem vita manna best að barneignir eru ekki sjálfgefnir lífsviðburðir heldur ferli sem in...
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
Faber, útgefandi Rooney, sagði í yfirlýsingu í dag að vegna lagasetningar í Bretlandi geti Faber ekki greitt Rooney tekjur sem aflað er í Bretlandi fy...
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
Prince, sem hefur verið dyggur stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, rekur nú málaliðafyrirtækið Vectus Global, sem starfar meðal annars á H...
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
📅 14.10.2026 👁️ 4
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
The home secretary said she would not hesitate to impose measures on other countries "refusing to co-operate".
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
Nokkuð kólnar í veðri á höfuðborgarsvæðinu með kvöldinu og í fyrramálið og viðbúið að hitinn verði nálægt frostmarki í efri byggðum. Lögreglan hvetur ...
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
„Jæja, litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ skrifar hann í færs...
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 4
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps Fréttin14. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Commen...
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
📅 14.10.2026 👁️ 4
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
Leikstjórinn Penelope Spheeris gagnrýndi leikkonuna Jennifer Aniston fyrir að hafa, eftir því sem Spheeris heldur fram, gefið henni kynlífstæki í þeim...
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
📅 14.10.2026 👁️ 4
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
„Jæja litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ segir Árni Árnason, ...
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
📅 14.10.2026 👁️ 4
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
Maðurinn sem lést í rússíbanaslysinu í Georgíufylki í fyrradag var nýgenginn í samtök rússíbanaáhugafólks. Samfélagið er í molum og krefst aðgerða til...
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru móðurfélags Ölgerðarinnar, og fyrrum forstjóri Ölgerðarinnar til tveggja áratuga segir fyrirtækið alltaf ...
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
📅 14.10.2026 👁️ 2
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
Prime Minister Andy Burnham welcomed President Zelensky to Downing Street on Wednesday, as Ukraine's leader looks to shore up his European allies five...
Tekið að flæða að húsum í Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Tekið að flæða að húsum í Vík
Nokkrar líkur eru á að sjór geti flætt yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal á háflóði í kvöld og því gæti þurft að loka honum. G. Pétur Matthíass...
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
Ólíklegt þykir að sjór flæði yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal. Vegagerðin og björgunarsveitir voru viðbúnar því að veginum yrði lokað því öld...
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
Heiðrún Hauksdóttir, einnig þekkt sem Heidrunguide, var stödd í Reynisfjöru fyrr í dag þar sem töluverður öldugangur var. Hún náði þessu myndskeiði þa...
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
📅 14.10.2026 👁️ 4
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
Ukraine says Starlink access has improved but it is still facing speed limits which are disrupting its battlefield "missions".
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
📅 14.10.2026 👁️ 4
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir gríðarlega mikilvægt að markaðir séu opnir og að það sé ekki komið í veg fyrir að ný fyri...
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
Þið hafið kannski heyrt um Ozempic-hár, -píku, -typpi, -andlit og fleira sem rekja má til aukaverkana eða óvæntra afleiðinga þessu vinsæla þyngdarstjó...
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
Fjallað var um það á Vísi í dag að úkraínskir hermenn hafi fundið fyrir takmörkunum sem felast í því að þegar móttökustöðvarnar nái tilteknum hraða sl...
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
Meðal annarra tónlistaratriða voru Herra hnetusmjör, Úlfur Úlfur, Elvar Orri og Steindi og Auddi en þeir síðastnefndu fengu Pétur til liðs við sig í s...
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
„Ekki skiptir maður við bófa! Hvað verður um hátíðarblandið? Hvar er núna gamla (en alls ekki bragðgóða) Sanitas maltið, Thule appelsínið og Vallasdry...
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld og inn í nóttina, segir Hera Guðlaugsdóttir ve...
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
Forseti ASÍ og forsætisráðherra ræddu lærdóminn af kjarasamningunum í ávörpum við setningu þriggja daga þings Alþýðusambandsins í morgun. Báðir frambj...
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
Eigendur gleraugnaverslunar sem barst krafa um bótagreiðslu, vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, leggja til að höfundalögum verði b...
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
Þrjú þök fuku af húsum á Siglufirði í veðurofsanum sem gengur nú yfir mestallt landið. Þakið á heimili Karenar Birgisdóttur, er eitt þeirra sem fauk.H...
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
📅 14.10.2026 👁️ 4
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
Nokkuð hættulegar aðstæður mynduðust við Reynisfjöru í dag vegna veðurs og mikillar ölduhæðar, fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Landeigendur höfðu virkja...
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
📅 14.10.2026 👁️ 5
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
Bítillinn Paul McCartney er ekki ánægður með hvernig hæð hans er framsett í væntanlegri fjögurra þátta kvikmynd Sam Mendes um Bítlana.„Við vorum allir...
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
📅 14.10.2026 👁️ 5
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 3. nóvember næstkomandi.
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki afhent Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ líkt og stofnunin átti að gera samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar u...
Airport drop-off charges to be reviewed after sharp increase
📅 14.10.2026 👁️ 4
Airport drop-off charges to be reviewed after sharp increase
Confirming the review, the government said it was "vital to ensure travel remains accessible and that passengers are treated fairly".
Skildu þýfið eftir á vett­vangi í stolnum bíl - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Skildu þýfið eftir á vett­vangi í stolnum bíl - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að eftir smá grennslan hafi komið í ljós að meintir þjófar höfðu brotist inn, s...
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira en spáð var
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira en spáð var
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira í september en sérfræðingar höfðu gert ráð fyrir. Hún mældist 3,7%, sem er örlítið meira en þau 3,6% sem spáð ha...
We are behind you and that will not change, PM tells Zelensky
📅 14.10.2026 👁️ 4
We are behind you and that will not change, PM tells Zelensky
The Ukrainian president visited London in an effort to bolster support among European allies following a row with Donald Trump.