Frá þessi segir í Facebook-síðu björgunarsveitarinnar. Ekki er tekið fram hvenær skipið strandaði en fjórir félagar úr sveitinni fóru á vettvang á björgunarbátnum Villi Páls þar sem þrír voru um borð í bátnum.
„Vel gekk að koma bátnum á flot á ný og gat hann siglt fyrir eigin vélarafli til heimahafnar. Betur fór en á horfðist og engin slys urðu á fólki,“ segir í tilkynningunni.