Samkvæmt upplýsingum frá Markúsi Vilhjálmssyni, sviðsstjóra þjónustu og sölu hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins, urðu engin slys á fólki.
„Ökumaðurinn er í góðu lagi og það virðast ekki hafa orðið nein slys á fólki,“ segir Markús og að strætisvagninn og rútan verði flutt á vinnusvæði Kynnisferða þar sem bifreiðarnar verða settar í viðgerð.
Hann segir atvikið hafa verið kynnt til árekstur.is og ekki hafi verið talin þörf á að kalla til viðbragðsaðila því engin slys urðu á fólki. Eins og má sjá á myndunum var vagninn töluvert skemmdur.