Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar en engar frekari upplýsingar að finna.Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst einnig tilkynning um menn að brjótast inn í íbúð en þegar betur var að gáð kom í ljós að þar var um að ræða einstaklinga sem voru að aðstoða húsráðanda við að komast inn til sín.Þá barst tilkynning um lúðraþyt í Vesturbæ en mögulegt þykir að þar hafi verið um að ræða hávaða frá götusópum sem ekið var um hverfið.Ein tilkynning barst um þjófnað í miðbænum. Þá voru níu sektaðir fyrir ólöglegar bifreiðastöður. Þrír voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Veistu meira? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullum trúnaði heitið.
Veistu meira? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullum trúnaði heitið.