Eldur logar í tugum íbúða í Drammen í Noregi. Mikill viðbúnaður slökkviliðs er á staðnum en ekki hefur enn náðst að ráða niðurlögum eldsins.
Engin slys orðið á fólki
Tilkynnt var um eld í íbúð í raðhúsi klukkan hálf fjögur að staðartíma í Noregi síðdegis. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði á vettvangi er erfitt að eiga við eldinn.
Talið er að um 40-50 íbúðir hafi þegar eyðilagst í brunanum. Ekki er talið að nein alvarleg slys hafi orðið á fólki en nokkrir íbúar voru fluttir á sjúkrahús.
Íbúar beðnir um að yfirgefa svæðið og loka gluggum
Íbúar sem eru búsettir nálægt brunanum hafa verið beðnir um að yfirgefa svæðið. Mælst er til þess í neyðarskilaboðum sem send voru á íbúa.
„Yfirgefið svæðið. Lokið dyrum, gluggum og loftopum og slökkvið á loftræstingu ef það er mögulegt, hætta er á sprengingu og eitruðum reyk,“ segir í skilaboðunum.
Slökkvilið frá nærliggjandi bæjum aðstoða við slökkvistörf. Sprengingar heyrast á vettvangi. Upptök eldsins eru enn ókunn.