Veitur hafa stöðvað borframkvæmdir í Skammadal vegna mengunar sem hefur orðið vart í Varmá. Umhverfisstofnun stöðvaði framkvæmdirnar tímabundið í síðustu viku en leyfði þær aftur eftir úrbætur. Þegar úrbæturnar skiluðu ekki tilætluðum árangri gaf Umhverfisstofnun Veitum frest þar til í dag til að bregðast við.
Jarðvegsmengun frá borframkvæmdunum hefur orðið til þess að Varmá hefur skipt litum síðustu daga.
Í tilkynningu frá Veitum segir að borframkvæmdir hafi verið stöðvaðar meðan unnið er að mótvægisaðgerðum. Þar segir að óháðir sérfræðingar verði fengnir til að meta áhrif af framkvæmdunum á Varmá og Varmárósa.