Lars Løkke Rasemussen, formaður Moderaterne, ætlar ekki að styðja hægristjórn Troels Lund Poulsens, formanns Venstre. Þetta varð ljóst eftir fund þeirra tveggja síðdegis.
Poulsen fékk stjórnarmyndunarumboðið eftir að ekki hafði gengið hjá Mette Frederiksen, forsætisráðherra og formanni Jafnaðarmanna, að mynda stjórn. Hann hóf formlegar tilraunir til að mynda ríkisstjórn 11. maí og hefur fundað með leiðtogum allra flokka.
58 dagar eru síðan þingkosningar voru í Danmörku og íbúar verið án nýrrar ríkisstjórnar síðan. Aldrei hefur tekið svona langan tíma að mynda ríkisstjórn í landinu.
Í dag dró svo til tíðinda þegar Poulsen og Rasmussen hittust á fundi. Eftir fundinn sagði Rasmussen við fjölmiðla að hann gæti ekki stutt svokallaða VLAK-stjórn, myndaða af Venstre, flokki Poulsen, Frjálslynda bandalaginu og Íhaldsflokknum.
Með þessari fullyrðingu Rasmussen gerði hann út af við möguleika Poulsen til að mynda stjórn til hægri og því missir hann stjórnarmyndunarumboðið.
Friðrik Danakonungur þarf að kalla formenn allra tólf stjórnmálaflokkanna á sinn fund í þriðja skiptið til að veita einhverjum öðrum stjórnarmyndunarumboð. Danska ríkisútvarpið, DR, telur líklegast að Frederiksen fái það aftur og reyni að mynda stjórn til vinstri og yfir miðju með Moderaterne, flokki Rasmussen.
Poulsen hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 19, klukkan 17 að íslenskum tíma.