Starfshópinn sé skipaður sérfræðingum á sviði gervigreindar en þar sitji:
- Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri GRID, formaður
- Anna Tumadóttir, framkvæmdastjóri Creative Commons
- Ari Kristinn Jónsson, framkvæmdastjóri nýsköpunarsjóðs Atlantshafsbandalagsins
- Halldór Fannar Guðjónsson, tæknistjóri, NVIDIA
- Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms
Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins þess efnis. Með hópnum starfi fulltrúar frá forsætisráðuneytinu og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
Hlutverk hópsins sé að meta stefnu, aðgerðir og áherslur stjórnvalda í málaflokknum heildstætt í ljósi hraðrar þróunar gervigreindar og gera tillögur um aðgerðir, forgangsröðun og úrbætur.
„Hópurinn mun einnig veita ráðgjöf um hvernig stjórnvöld geta stutt við öfluga uppbyggingu og innleiðingu gervigreindar á Íslandi og móta tillögur að samstarfi hins opinbera og atvinnulífsins um hagnýtingu gervigreindar,“ segir í tilkynningunni.
Skipun starfshópsins byggi á grunni sem lagður sé í stefnu Íslands um gervigreind og aðgerðaáætlun stjórnvalda um gervigreind.