Stal sjö milljónum af HHÍ og er nú gjaldþrota

Bryndís Mjöll Sævarsdóttir, sem vakti athygli eftir að hafa verið sakfelld fyrir að hafa dregið sér um sjö milljónir króna úr Happdrætti Háskóla Íslands, þar sem hún starfaði, hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta.
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði 9. júlí síðastliðinn að bú Bryndísar yrði tekið til gjaldþrotaskipta og var Halldór L. Lárusson skipaður skiptastjóri sama dag. Frestdagur gjaldþrotaskiptanna var 1. júlí 2026.
Bryndís komst í fréttirnar á þessu ári þegar hún var dæmd fyrir umtalsverðan fjárdrátt úr Happdrætti Háskóla Íslands, árið 2023. Samkvæmt dóminum nam fjárdrátturinn um sjö milljónum króna og var hún sakfelld fyrir umboðssvik.
Í innkölluninni er öllum þeim sem telja sig eiga kröfur eða önnur réttindi á hendur búinu gefinn tveggja mánaða frestur til að lýsa kröfum sínum við skiptastjóra. Kröfulýsingar skulu berast með rafrænum hætti á netfang skiptastjóra.
Skiptafundur verður haldinn á skrifstofu skiptastjóra við Laugaveg 3 í Reykjavík þann 25. september 2026 klukkan 14:00. Þar verður farið yfir skrá yfir lýstar kröfur og ráðstöfun eigna og réttinda búsins.
Fram kemur jafnframt að komi ekkert fram um eignir í búinu verði skiptunum lokið á þeim fundi samkvæmt ákvæðum laga um gjaldþrotaskipti.