Gervigreindarbyltingin er stærsta umbreytingin sem heimurinn stendur frammi fyrir og á þúsundföldum sterum. Þetta segir forseti Íslands sem tók þátt í ráðstefnu í Genf í Sviss í síðustu viku þar sem hún var meðal stofnfélaga í alþjóðlegri ráðgjafanefnd um hvernig gervigreind verði nýtt til góðs.
Ráðstefnan var haldin í tengslum við Heimsþing um gervigreind til góðs. Þar var varað við sofandahætti stjórnvalda ríkja heims.
„Stærsta umbreyting sem er að eiga sér stað í heiminum í dag, og ekkert samfélag verður ekki fyrir áhrifum af, er gervigreindarbyltingin,“ segir Halla Tómasdóttir.
Einkageirinn hreyfir sig hraðar en stjórnvöld ráða við
Markmið nefndarinnar er að leiða saman í eitt samtal fjölbreyttan hóp úr ólíkum áttum með ólík viðhorf alls staðar að úr heiminum. Þótt sóknarfærin liggi víða gera hætturnar það líka og Halla vitnaði í einn nefndarmanna.
„Hann orðaði það þannig að stærsta áhættan væri kannski ekki gervigreindin sjálf heldur sofandi stjórnvöld. Það sem viðkomandi átti við er að einkageirinn og tæknin eru, eins og staðan er í dag, að hreyfa sig miklu hraðar en stjórnvöld og stofnanir virðast ráða við.“
Gervigreindarmódel læra með því að stela
Meðal ræðumanna á ráðstefnunni var Björn Ulvaeus, sem er annað B-ið í hljómsveitinni ABBA. Halla vitnaði í ræðu hans:
„Öll gervigreindarmódelin hafa lært að búa til tónlist með því að stela því sem við bjuggum til.“
Hún fagnar því að forsætisráðherra og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hafi skipað starfshóp sérfræðinga utan Stjórnarráðsins, sem hafi þekkingu á gervigreindarmálum, um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar. Forsetinn segir gríðarlega mikið í húfi, traust samfélagsins og lýðræðið sjálft.
„Gervigreindin og sú bylting og umbreyting sem hún hefur í för með sér, hún er samfélagsmiðla-snjallsímaumbreytingin á hundraðföldum eða þúsundföldum sterum, segja þeir sem best þekkja til.“