Sláturfélag Suðurlands (SS) hyggst hætta halal-slátrunum á lömbum.
Steinþór Skúlason forstjóri SS segir aðferðina ekkert hafa breyst á undanförnum árum. Eini munurinn hafi verið að múslimi hafi starfað í aflífuninni og sóst hafi verið eftir sérstakri halal-vottun frá Múslimafélaginu.
Ástæður þess að SS hefur ákveðið að hætta að sækjast eftir vottuninni eru tvær. Annars vegar hafi SS tekið tillit til viðhorfs fólks sem er andsnúið halal-slátrun og þá hafi útflutningur á kjöti SS dregist saman undanfarið.
„Við tökum tillit til tilfinninga fólks. Þótt trúmál lúti nú ekki alltaf rökum, þá auðvitað skipta þau máli. Það er heldur engin fjárhagsleg ástæða til að gera þetta lengur, útflutningur hefur minnkað verulega enda hefur salan aukist innanlands,“ segir Steinþór.