Yfirvöld í Kaliforníu segja að þau hafi uppgötvað sprungu í skemmdum tanki með eitruðum efnum sem gæti létt á þrýstingi, en hætta á sprengingu hefur neytt tugþúsundir íbúa til að yfirgefa heimili sín.
Um 40.000 íbúum var skipað að yfirgefa heimili sín á Garden Grove-svæðinu í Orange-sýslu, suðaustan við Los Angeles, á föstudag eftir að tankurinn tók að leka og sendi frá sér gufur yfir þéttbýlt svæði um átta kílómetra frá Disneyland.
Í gærkvöldi nálguðust slökkviliðsmenn tankinn til að afla upplýsinga og sáu „mögulega sprungu í tankinum, sem gæti hugsanlega verið að létta á þrýstingnum þar inni,“ sagði TJ McGovern, starfandi slökkviliðsstjóri slökkviliðs Orange-sýslu, í færslu á X.
Skref í rétta átt
„Þessi aðgerð sem við framkvæmdum gaf okkur jákvæðar upplýsingar til að taka upplýstar ákvarðanir í dag í jákvæðu ljósi,“ sagði hann og bætti við að sérfræðingar væru að rannsaka upplýsingarnar sem safnað var vandlega.
„Við erum ekki komin á leiðarenda, en þetta var skref í rétta átt.“
Ekkert benti til þess hvað olli lekanum, sem fyrst var tilkynnt um á fimmtudag, og McGovern tjáði sig ekki um hvort sprungan tengdist lekanum.
Tankurinn inniheldur 26.000 lítra af metýlmetakrýlati sem er rokgjarn og eldfimur vökvi sem notaður er til að búa til plast.
Slökkviliðsmenn höfðu varað við því í gær að tankurinn væri að hitna, sem jók á ótta við meiriháttar sprengingu, og hafa sprautað vatni til að kæla tankinn.
Regina Chinsio-Kwong, heilbrigðisfulltrúi Orange-sýslu, sagði á föstudag að stóra lokunarsvæðið í kringum tankinn væri nauðsynleg varúðarráðstöfun.
