Lögregla var kvödd til í Breiðholti í dag en þar var tilkynnt um sprautufíkla sem voru að sprauta sig í kjallara fyrirtækis. Var þeim vísað út af laganna vörðum.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglu. Þar er einnig greint frá þjófnaði í verslun í Kópavogi og þar í sveit varð líka umferðaróhapp. Ekki urðu slys á fólki.
Ósætti kom upp milli fólks í Hlíðahverfi en lögregla leysti málið. Í sama hverfi var maður „til leiðinda“ á heilsugæslustöð og var honum vísað út. Í póstnúmeri 104 var maður á gangi með umferðarskilti og var honum gert að koma því aftur á sinn stað.
Í miðborg Reykjavíkur var maður í „mjög svo annarlegu ástandi“ eftir neyslu á fíkniefnum.