Íbúar á vesturhluta landsins eru langþreyttir á sólarleysi, en nú eru breytingar í vændum því veðurspáin um helgina er ekki sem verst. Theodór Freyr Hervarsson veðurfræðingur segir breytingarnar nú þegar hafnar.
„Við sjáum að það er svona aðeins farið að glitta í bláan himin hérna hjá okkur. Það verður þurrt og bjart svona að mestu leyti sunnan- og vestanlands næstu tíu daga, getum við sagt, og fyrir norðan og austan er ekki að sjá neina vætutíð þannig lagað séð.“
Íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa þó ekki látið þrotlausar rigningar stoppa sig. Í Krónunni verslaði fólk á grillið þrátt fyrir vætuna og í miðbænum sóttu borgarbúar kaffihús.
Rigningin hefur ekki haft mikil áhrif á aðsókn í Húsdýragarðinn og sagðist einn ungur gestur meira að segja kjósa rigninguna fram yfir sólina.