Kínverska sölusíðan Temu hefur stöðvað sölu á nokkrum gerðum af sólarvörn sem ekki eru taldar veita vörn fyrir sólinni. Frá þessu er greint í danska ríkisúvarpinu.
Ný rannsókn sýnir að nokkrar tegundir sólarvarna sem seldar eru á Temu veita alls ekki þá vörn fyrir geislum sólarinnar sem lofað er.
Verja ekki gegn sólinni
Dönsku neytendasamtökin Forbrugerrådet Tænk, í samstarfi við önnur evrópsk neytendasamtök, prófuðu tíu tegundir sólarvarnar sem seldar eru í kínversku netverslununum Temu, Shein og AliExpress.
Fjórar tegundanna voru keyptar á Temu. Niðurstöður sýna að ein þeirra veitir enga vörn en tvær vernda verr en tilgreint er á umbúðum. Aðeins ein tegund veitti þá vörn sem fullyrt var á umbúðum. Hún inniheldur hins vegar efni sem er talið geta valdið hormónatruflunum.
„Við höfum fjarlægt þessar gerðir sólarvarnar á meðan við bíðum eftir frekari rannsóknum og stöðvað stöðvað sölu á svipuðum vörum tímabundið í öryggisskyni,“ segir í tölvupósti frá Temu.
Aðeins ein tegund sólarvarnar veitt þá vernd sem lofað var
Í heildarprófun neytendasamtakanna á tíu tegundum sólarvarnar frá Temu, Shein og AliExpress, voru þrjár tegundir undanskildar vegna þess að þær innihalda hormónatruflandi efni sem er ólöglegt innan Evrópusambandsins.
Af þeim sjö tegundum sem eftir stóðu voru fjórar með sólarvarnarstuðul (SPF) á bilinu 1,2 til 1,6, sem jafngildir engri eða mjög lítilli vörn. Mælt er með því að nota vörn sem er að minnsta kosti með sólarvarnarstuðulinn 30. Tvær af sjö tegundum sem prófaðar voru veita talsvert minni vörn en fram kemur á umbúðunum. Aðeins ein veitti þá vernd eins og lofað var.