Sól notast við vistvænar leiðir í umhverfisvænni tískulínu sinni og nýju flíkurnar eru sérstaklega hannaðar með það í huga að geta notað þær á marga vegu. Pils gæti þannig orðið að hálskraga eða ermum og þar fram eftir fötum.
Meðal gesta á sýningunni var Vogue-penninn Mosha Lundström sem var mjög hrifin af flíkum Sólar, eins og sjá má hér fyrir neðan:
Þá fjallaði tískurisinn Vogue sömuleiðis ítarlega um hönnun Sólar á alþjóðlegu heimasíðu sinni.
„Þetta snýst ekki um að kaupa heilt nýtt lúkk. Flíkurnar eiga að opna á nýjar leiðir til að leika sér með það sem til er í fataskápnum. Ég er mjög spennt fyrir því að gefa þeim sem klæðast flíkunum algjört frelsi til að velja hvernig þeir vilja nota þær. Mér líður eins og þetta sé framtíðin,“ segir Sól í samtali við Vogue.
Sýning Sólar bar heitið Everything can exist, eða allt getur verið til, og var hönnuðurinn full þakklætis að sýningu lokinni.
Sól Hansdóttir var viðmælandi í Vísis-þáttunum KÚNST fyrir tæpum þremur árum þar sem hún gaf áhorfendum innsýn í sitt listræna ferli. Hægt er að sjá þáttinn í athugasemd hér að neðan: