Í myndskeiðinu sagði Margrét Rós Sigurjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, frá því að hún hefði búið í Svíþjóð og fundist hún fá meira fyrir laun sín þar en á Íslandi, þó að þau væru vissulega lægri þar en hér.
Því hefði hún ákveðið að bera saman lágmarkslaun á Íslandi og í Svíþjóð, miðað við það hversu marga lítra af mjólk mætti kaupa fyrir laun eins dags. Þannig gaf hún sér að lágmarkslaun hér væru 15.000 krónur á dag en 11.500 krónur í Svíþjóð.
Þá sagði hún að mjólkurlítrinn hér kostaði 380 krónur en 183 krónur í Svíþjóð og þannig mætti kaupa aðeins 39 mjólkurfernur fyrir ein íslensk lágmarksdagslaun en heilar 63 í Svíþjóð. Loks reiknaði hún út að kaupa mætti 62 prósent meiri mjólk fyrir dagskaupið í Svíþjóð en á Íslandi.
234 krónur, ekki 380
Sá hængur er helst á útreikningi Margrétar Rósar að samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ er hvergi hægt að kaupa lítra af venjulegri mjólk í verslun á Íslandi á 380 krónur. Samkvæmt eftirlitinu kostar lítri af bæði ný- og léttmjólk 234 krónur í Bónus. Fyrir 15.000 krónur mætti þannig kaupa 64 mjólkurfernur, ekki 39.
Til samanburðar kostar lítri af nýmjólk í lágvöruverðsversluninni Lidl í Svíþjóð 147 krónur, talsvert minna en í dæmi Margrétar Rósar. Fyrir 11.500 króna sænsk lágmarksdagslaun mætti þannig kaupa 78 mjólkurfernur. Það gerir 22 prósent meiri mjólk en á Íslandi.
Eyddu myndskeiðina eftir að fjallað var um það
Fosvarsmenn SJÁ virðast hafa áttað sig á mistökunum þar sem myndskeiðinu hefur nú verið eytt af Instagramsíðu samtakanna.
Það var gert eftir að Viðskiptablaðið fjallaði um málið og setti í samhengi við hið þekkta mjólkurfernupróf, sem margur stjórnmálamaðurinn hefur fallið á í gegnum tíðina.
Arnar Arinbjarnarson vakti einnig athygli á málinu á samfélagsmiðlinum X, þar sem hann deilir upptöku af myndskeiðinu. Það má sjá í spilaranum hér að neðan:
Já-sinnar segja í nýjasta myndbandi sínu að mjólkurfernan kosti 380 kr. á Íslandi meðan staðreyndin er að hún kostar 235 krónur. Þau þurftu að segja ósatt svo boðskapurinn meiki sens.
— Arnar Arinbjarnarson (@arnarar) July 15, 2026
Heldur þetta fólk að samborgarar þeirra sjái ekki óheiðarleikann? pic.twitter.com/mbqmD009vw