Snarpur skjálfti reið yfir suðvesturhorn landsins kl. 13.45. Skjálftinn átti upptök sín á Mosfellsheiði, skammt norður af afleggjaranum frá Suðurlandsvegi að Þrengslum.
Skjálftinn var um 4,5 að stærð samkvæmt fyrstu mælingum Veðurstofu. Hann er jafnframt talinn hafa orðið á um 4,5 kílómetra dýpi.
Fjöldi eftirskjálfta hefur mælst.
Skjálftinn varð skammt norður af hringveginum vestur af Hellisheiði, ekki langt frá Hveradalabrekkunni.
Kort/map.is
Mikil hrina
Hann kemur í kjölfar mikillar skjálftahrinu á svæðinu um helgina.
Að sögn Elísabetar Pálmadóttur, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands, fannst skjálftinn vel á suðvesturhorninu og hefur Veðurstofan fengið tilkynningar frá Hveragerði, Selfossi og höfuðborgarsvæðinu.
Uppfært:
