Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði hafa ákveðið að slíta viðræðum við Framsóknarflokkinn um áframhald á meirihlutasamstarfi í bænum og vísa til „alvarlegs trúnaðarbrests“.
Í tilkynningu segir að eftir að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn handsöluðu samkomulag um viðræður um áframhaldandi meirihlutasamstarf hafi komið í ljós að Framsóknarflokkurinn hafði handsalað sambærilegt samkomulag við aðra flokka í bænum.
Það sé því ljóst að grundvöllur meirihlutasamstarfs flokkanna sé ekki lengur fyrir hendi.
Sjálfstæðismenn segja ljóst að flókið verði að mynda meirihluta í bænum við þessar aðstæður og mikilvægt fyrir bæjarfulltrúa að vanda til verka.
„Sú ábyrgð hvílir á bæjarfulltrúum að mynda starfhæfan meirihluta í bænum þar sem meginmálefnin eru að tryggja traustan rekstur og áframhaldandi uppbyggingu í Hafnarfirði. Að Hafnarfjörður verði áfram í fremstu röð og besti bærinn til að búa í. Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki láta sitt eftir liggja í þessum efnum.“
Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur hafa verið í meirihluta síðustu tvö kjörtímabil.
Oddvitar framboðslistanna, Orri Björnsson og Valdimar Víðisson tilkynntu upphaf viðræðna í gær sögðu samstarf flokkanna hafa verið farsælt.
Fréttin var uppfærð.