Landsréttur sneri á mánudag við gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manni sem grunaður er um ítrekuð kynferðisbrot gegn barni. Maðurinn hefur játað að hafa ítrekað haft kynmök við stúlku undir 15 ára aldri.
Héraðsdómur Norðurlands eystra úrskurðaði manninn fyrir helgi í gæsluvarðhald til 7. október. Þetta gerði dómstóllinn að kröfu lögreglu sem rannsakaði brot mannsins gegn stúlkunni.
Stúlkan greindi frá því að maðurinn hefði sex til átta sinnum haft kynmök við sig síðan um páska. Maðurinn sagði að það hefði gerst tíu sinnum.
Dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra sagði að maðurinn væri undir sterkum grun um alvarleg kynferðisbrot gegn barni, brot sem hann hefði játað hjá lögreglu. Sá dómari taldi brotin þess eðlis að gæsluvarðhald væri nauðsynlegt vegna almannahagsmuna.
Maðurinn áfrýjaði niðurstöðunni til Landsréttar sem komst að annarri niðurstöðu og felldi gæsluvarðhaldið úr gildi. Í úrskurði Landsréttar kemur fram að bæði stúlkan og maðurinn hafi greint frá framgöngu mannsins og að við slíkum brotum liggi allt að 16 ára fangelsi.
Landsréttur féllst hins vegar ekki á að almannahagsmunir krefðust þess að maðurinn sætti gæsluvarðhaldi. Dómstóllinn sagði að gæsluvarðhaldið hefði fyrst og fremst verið samþykkt því barnaverndaryfirvöld hefðu lýst erfiðleikum við að halda stúlkunni og manninum aðskildum vegna þess að stúlkan sækti í samskipti við hann. Þetta sögðu dómarar við Landsrétt ekki nægjanlega ástæðu til að halda manninum í gæsluvarðhaldi vegna almannahagsmuna.