Ábreiður er verkefni á vegum Nova þar sem fyrirtækið fær til liðs við sig upprennandi íslenskt tónlistarfólk sem glæðir eldri íslenska smelli nýju lífi. Markmið verkefnisins er að tengja saman ólíkar kynslóðir tónlistarfólks og kynna þekkt lög í nýjum og ferskum búningi.
Á síðustu tveimur árum hefur Nova gefið út fjórar ábreiður. Inspector Spacetime reið á vaðið með „Í Reykjavíkurborg“ eftir Jóhann Helgason, í fyrra setti Saint Pete smellinn „Superman“ eftir Ladda í nýjan búning og í sumar gaf Elvar út sína útgáfu af „Hlið við hlið“ eftir Friðrik Dór.
Í nýjustu ábreiðunni tók Tatjana lagið „Einhver elskar mig“ eftir Pál Óskar en lagið er í sérstöku uppáhaldi hjá Páli Óskari, sem lýsti yfir ánægju með að Tatjana skyldi vilja vinna áfram með það og færa því nýtt líf.
Nova og Tatjana fögnuðu laginu með útgáfupartýi í Bíó Paradís í síðustu viku og mætti fjöldi góðra gesta. Stemmingin náði svo hámarki þegar Tatjana flutti lagið fyrir fullum sal og fangaði ljósmyndarinn Róbert Arnar stuðið á mynd.