Skúli Tómas var ákærður fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn vegna andláts konu sem lést í umönnun hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja árið 2019. Embætti landlæknis svipti hann lækningaleyfi árið 2021 þegar hann hafði stöðu grunaðs í fleiri andlátum á stofnuninni. Að endingu var aðeins ákært í einu máli.
Héraðsdómur vísaði ákærunni frá dómi í júlí á þeim forsendum að Skúla Tómasi hefði þegar verið refsað fyrir meint brot með því að Landlæknir svipti hann lækningaleyfi. Þannig taldi dómurinn að það myndi brjóta í bága við bann við tvöfaldri málsmeðferð að refsa honum í sakamáli.
Héraðssaksóknari kærði úrskurð héraðsdóms til Landsréttar en Skúli Tómas sneri aftur til vinnu á Landspítala í skugga kærunnar. Það þótti eðlilegt með hliðsjón af niðurstöðu héraðsdóms.
Landsréttur kvað upp úrskurð í kærumálinu þann 27. ágúst síðastliðinn. Niðurstaða réttarins var að svipting starfsleyfis Skúla Tómasar væri hvorki refsing né refsikennd viðurlög og málið hjá Landlækni væri því ekki sakamál í eðli. Því bryti það ekki í bága við bann við tvöfaldri málsmeðferð að halda sakamáli á hendur Skúla Tómasi til streitu