Skólastjóri Vesturbæjarskóla hefur nú staðfest að bókin Vertu þú eftir Ingileifi Friðriksdóttur og Maríu Rut Kristinsdóttur hafi verið notuð í kennslu við skólann.
Málið kemur í kjölfar nokkuð harðrar umræðu um kennsluefni tengt hinseginfræðslu í Vesturbæjarskóla, en Nútíminn fjallaði áður um foreldra sem óskuðu eftir undanþágu fyrir barn sitt frá kennslu sem byggði á efni frá Samtökunum ’78.
Þegar Nútíminn leitaði fyrst eftir upplýsingum um notkun bókarinnar vísaði skólastjóri á Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar. Þaðan fengust hins vegar þær upplýsingar að það væru skólastjórar sem bæru ábyrgð á því hvaða kennsluefni væri notað í einstökum skólum.
Eftir að fyrirspurn var ítrekuð og bent á afstöðu sviðsins barst loks svar frá skólastjóra.
„Sæll, já bókin Vertu þú eftir Ingileif Friðriksdóttur og Maríu Rut Kristinsdóttur hefur verið nýtt í kennslu hér,“ skrifaði Margrét Einarsdóttir, skólastjóri Vesturbæjarskóla, í svari sínu til Nútímans.
Umdeild í kjölfar Vesturbæjarskólamálsins
Bókin hefur verið nefnd í tengslum við umræðuna um kennsluefni sem notað er í tengslum við hinseginfræðslu í grunnskólum. Málið vakti athygli þegar foreldrar í Vesturbæjarskóla sögðust hafa óskað eftir undanþágu frá kennslu sem byggði á tilteknu efni en fengið synjun.
Síðar steig faðir barnsins fram undir nafni og gagnrýndi meðal annars tengsl annars höfundar bókarinnar, en Ingileif Friðriksdóttir, sem er aðstoðarmaður utanríkisráðherra, gagnrýndi föðurinn fyrir að taka barn sitt úr kennslu þar sem hennar eigin bók er notuð sem kennsluefni.
Ekki náðist í Ingileifu við vinnslu fréttarinnar.