Skólarútunni var ekið yfir lestarteina þrátt fyrir að viðvörunarljós loguðu og að vegslá væri niðri, að sögn Geerts Hermans, borgarstjóra í Buggenhout norðvestur af Brussel þar sem slysið varð um klukkan 8:15 að staðartíma í morgun.
Belgíski ríkisfjölmiðillinn VRT segir að um hundrað farþegar hafi verið um borð í lestinni og að þeim hafi verið komið út úr henni. Ekki liggi fyrir hversu margir hafi verið í rútunni.
Fréttin verður uppfærð.