Sorpa skoðar nú að ráðast í kerfisbreytingu á því hvernig íbúar fá aðgang að þjónustu sem þeir greiða nú þegar fyrir, en ekki hefur verið útfært nánar hvernig slíku kerfi yrði háttað. Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, segir að Sorpa telji að bæði skýrleika og sanngirni vanti í núverandi gjaldtökukerfi.
„Það er áhugi fyrir því að innleiða svipað fyrirkomulag og sjá má í nágrannalöndum okkar og í sveitarfélögunum í kringum okkur,“ segir Gunnar Dofri og nefnir til dæmis klippikort.
Í dag borga íbúar höfuðborgarsvæðisins fyrir þjónustu Sorpu í formi fasteignagjalda og fá í skiptum að farga ákveðnum tegundum af rusli án þess að borga fyrir það á staðnum. Í þessu kerfi eru einungis um 10% gesta Sorpu sem greiða aukalega á staðnum fyrir förgun á rusli sem ekki fellur undir tiltekna flokka, t.d. múrbrot eða viðarbretti.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.