Stjórnir SL og Almenna – Lífsverks hafa ákveðið að hefja könnunarviðræður um mögulega sameiningu sjóðanna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðunum en þar segir að markmið viðræðnanna sé að kanna hvort sameinaður lífeyrissjóður myndi skapa sterkari grunn fyrir hagstæð og trygg lífeyrisréttindi beggja sjóða, bæta þjónustu við sjóðfélaga og hvort samlegðaráhrif leiði til hagræðingar í rekstri.
„Verði af sameiningunni yrði hinn sameinaði sjóður fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins með heildareignir upp á 1.035 milljarða króna miðað við stöðu eigna í lok síðasta árs,“ segir í tilkynningunni.
„Viðræður eru á frumstigi en stefnt er að því að þeim verði lokið fyrir mitt sumar. Náist samkomulag verða tillögur um sameiningu sjóðanna og breytingar á samþykktum lagðar fyrir stjórnar- og sjóðfélagafundi í haust með það að markmiði að sjóðirnir sameinist 1. janúar 2027.“
Tillögur um sameiningu og breytingar á samþykktum eru háðar samþykki fjármála- og efnahagsráðuneytisins að fenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins. Einnig er sameiningin háð breytingum á lögum um SL og eru samtöl hafin með fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar að lútandi. Jafnframt yrði sameiningin tilkynnt Samkeppniseftirlitinu.