Rekstur Elkem á Íslandi hefur verið erfiður síðustu ár og móðurfélagið í Noregi skoðar framtíð starfseminnar hérlendis. Forstjórinn á Íslandi segir að markmiðið sé þó enn að halda rekstrinum áfram og verja störf í verksmiðjunni.
Í ársuppgjöri Elkem segir að ákveðið hafi verið að skoða eignarhald fyrirtækisins á Elkem á Íslandi og kanna möguleika á fjárfestingum í fyrirtækinu. Rekstur hafi ekki gengið sem skildi síðan 2024. Í uppgjörinu eru sérstaklega tilgreind neikvæð áhrif á hagnað fyrirtækisins vegna tolla Evrópusambandsins. Í ársskýrslunni er Elkem á Íslandi skilgreint sem aflögð starfsemi.
FF7 greindi fyrst frá.
Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi, segir ekki standa til að selja Elkem á Íslandi.
„Það sem þessi breyting þýðir er sjálfstætt framhald af því sem við erum búin að vera að vinna að. Samkeppnishæfni á Íslandi hefur alveg átt undir högg að sækja,“ segir Álfheiður.
„Það sem við höfum verið að gera er að skoða alla möguleika sem við getum til að styðja við reksturinn á Grundartanga. Þessi ákvörðun hjá stjórninni er í beinu framhaldi og hluti af þessari vegferð. Markmiðið er ennþá að vera með sterkan framleiðanda á hágæða kísilmálmi á Íslandi.“
Sem stendur liggur ekkert fyrir sem mun hafa bein áhrif á starfsemi á Grundartanga.
„Mínar tilætlanir eru þær að við munum ná að haga hlutunum þannig að við séum að verja störfin á Grundartanga og í mínum villtustu draumum jafnvel að fjölga þeim.“
„Það er ekki vilji, endilega, að selja eignina“
Álfheiður segir móðurfyrirtækið verða að greina frá þessum breytingum þar sem það er skráð á markað í Noregi. Eignir félagsins hafi verið teknar til hliðar til að fá svigrúm á meðan verið er að skoða leiðir til að styðja við reksturinn.
Allra leiða verði leitað til að styðja við verksmiðju Elkems á Grundartanga og lykilafurð fyrirtækisins, hágæðakísilmálm.
„Þarna þarf stjórnin, því við erum á markaði í Noregi, að segja frá þessu. Við erum að taka eignir aðeins til hliðar til þess að fá smá frið í þessa vinnu, um það snýst þetta raunverulega. En þetta er engin stefnubreyting, þetta er bara í beinum takti við það sem við erum búin að vera að vinna að.“
Álfheiður segir að skilgreining Elkem á Íslandi sem aflögð starfsemi sé reikningshaldsleg. Hún þýði að arðsemi fyrirtækisins á Íslandi sé ekki hluti af kynningum á arðsemi móðurfélagsins.
„Það gefur okkur tíma. Þetta er bara skilgreining og gefur frest þar sem þú getur dregið eitt til hliðar. Oft er verið að skoða sölur á eign en það er ekki það sem við erum að leggja áherslu á,“ segir forstjórinn. „Það er ekki vilji, endilega, að selja eignina.“