Formaður Læknafélags Íslands gagnrýnir að Tómas Guðbjartsson hafi ekki fengið að bera hönd fyrir höfuð sér fyrir dómi. Hún segir lækna sammála um að mál eins og plastbarkamálið megi aldrei endurtaka sig.
Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að ríkið væri bótaskylt vegna stórfellds gáleysis Tómasar Guðbjartssonar læknis, sem hafi leitt til andláts Andemariams Beyene. Andemariam fékk ígræddan plastbarka í Svíþjóð árið 2011, fyrstur manna, fyrir milligöngu Tómasar, og lést þremur árum síðar.
Dómur héraðsdóms er mjög afdráttarlaus um ábyrgð Tómasar í málinu. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir tvennt hafa komið á óvart.
„Niðurstaða dómsins er að einhverju leyti á skjön við plastbarkaskýrsluna frá 2017, rannsóknarskýrslu Páls Sveinssonar, að því er varðar ábyrgð íslenskra lækna á að þessi tiltekni sjúklingur fór í plastbarkaaðgerð í Svíþjóð,“ segir Steinunn.
„Rannsóknarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að mistökin hefðu fyrst og fremst átt sér stað í Svíþjóð, á Karólínska, og ábyrgðin lægi fyrst og fremst þar, þannig að þetta er svolítið önnur niðurstaða en rannsóknarnefndin komst að.“
„Annað sem kom okkur svolítið á óvart að í þessum dómi er fjallað með mjög ítarlegum hætti um ávirðingar á einn nafngreindan lækni, og settar fram fullyrðingar um hans ábyrgð, án þess að hann hafi verið kallaður fyrir dóm og hafi fengið tækifæri til að tjá sig áður en dómur féll. Okkur finnst það skjóta skökku við að hans vitnisburður hafi ekki verið hafður til hliðsjónar,“ segir Steinunn.
Læknar hafa staðið þétt við bakið á Tómasi síðan málið kom upp. Spurð hvort Læknafélagið standi með Tómasi segir Steinunn:
„Við erum stéttarfélag Tómasar Guðbjartssonar og hann er félagi í Læknafélaginu, sem okkar félagi munum við auðvitað styðja hann eftir því sem við á og með eðlilegum hætti. En það er líka svo mikilvægt að því sé haldið til haga hversu mikið allir harma að þetta hafi átt sér stað og hversu mikilvægt það er að mál sem þetta endurtaki sig ekki.“