Skipverjarnir tveir sem ákærðir voru í Dettifossmálinu svokallaða játuðu sök við þingfestingu þess í dag. Þeir játuðu þó ekki samverknað og samþykktu ekki upptöku á síma.
Skipverjarnir höfðu einnig athugasemdir hvað varðar mat á ásetningi og styrkleika fíkniefnanna.
Skipuleggjendurnir tveir neituðu sök að mestu. Einn þeirra er íslenskur og annar af erlendu bergi brotinn. Hinn síðarnefndi játaði upptöku á óverulegu magni af testósteróni en neitaði sök hvað vörslu á maríjúana varðar.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur 24.-26. ágúst með fyrirvara.
Allir sakborningarnir voru fjarverandi en viðstaddir í gegnum fjarfundarbúnað.
Ágreiningur gæti tafið aðalmeðferðina
Undir lok þingfestingarinnar tókust verjandi eins sakborninganna og saksóknari á um það hvort gögn frá lögreglu vantaði í málið. Taldi verjandinn svo vera og sagði mikla annmarka vera á því hvernig lögreglan hefði staðið að málinu.
Saksóknari sagði öll gögn málsins þegar hafa verið afhent. Dómari sagði ágreininginn geta tafið aðalmeðferð málsins.
Verjendur vildu ekki tjá sig að lokinni þingfestingu þegar eftir því var leitað.
