Starfsmönnum G. Hjálmarssonar á Akureyri brá í brún þegar þeir mættu til vinnu í morgun. Tvær beltagröfur og vörubíll sem fyrirtækið á voru skemmd í nótt. Úðað hafði verið með rauðum og svörtum olíu- eða lakklit á tækin, orð á borð við „aumingi“ og „öfund“.
Hjálmar Guðmundsson, einn eigenda G. Hjálmarssonar, sagði við fréttastofu að tjónið gæti hlaupið á milljónum króna: „Það er búið að prófa að ná þessu af og þetta fer illa af. Þetta er einhverskonar olíulakk en ekki hefðbundið merkisprey.“
Farið að bera á fleiri skemmdarverkum og þjófnaði
Vélarnar sem voru skemmdar voru í Móahverfi, sem er í byggingu norðvestast á Akureyri. G. Hjálmarsson hefur verið þar undanfarin fjögur ár og Hjálmar segist aldrei hafa lent í öðru eins. Það sé farið að bera meira á skemmdarverkum á eignum verktaka. Einnig hafi verið brotist inn hjá tveimur.
„Byggingaraðilar og fleiri hafa orðið fyrir tjóni á svæðinu. Í fyrra var brotist inn til tveggja verktaka á svæðinu og verkfærum stolið. Ég er búinn að óska eftir við Akureyrarbæ að setja upp myndavélar inn og út úr hverfinu,“ segir Hjálmar.
Lögreglan og tryggingafélög taka við málinu
Lögregla og tryggingafélög voru kölluð til í morgun. Hjálmar segir það fara í sinn farveg:
„Lögreglan segir lítið. Þeir reyna bara að sinna sínu starfi og eru farnir að skoða þetta. Það eru tvær myndavélar í hverfinu sem þeir eru að skoða núna.“
Tryggingafélög séu að meta tjónið á vélunum sem er umtalsvert þar sem báðar gröfurnar eru nýlegar. Hjálmar telur að það hafi ekki verið neinir krakkar að verki.
„Ég á bágt með að trúa því að þetta sé eftir einhverja krakka. Þetta virkar eins og þetta hafi verið eftir einhverja stálpaða einstaklinga. Einhverja sem þurfa virkilega á aðstoð að halda.“