Skandall skekur Umbótaflokkinn
Meðlimir í flokki Nigel Farage reyndu að tryggja erlend fjárframlög. Áður hafa bandarísk framlög verið kærð.
Breski hægriflokkurinn Umbótaflokkurinn, Reform UK, undir forystu Nigel Farage, kemur saman á ársfundi sínum í dag í skugga nýs hneykslismáls vegna ásakana um að flokkurinn hafi brotið reglur um fjárframlög.
Brexit-forkólfurinn Farage hafði vonast til að nýta fundinn til að komast yfir fjölmörg deilumál um fjárgjafir sem hafa dregið úr fylgi flokksins, sem er andsnúinn innflytjendum, í skoðanakönnunum.
En aðeins nokkrum klukkustundum fyrir aðalræðu Farage sögðu tveir háttsettir embættismenn Umbótaflokksins af sér í kjölfar rannsóknar með falinni myndavél sem sýnd var á Channel 4 News, þar sem þeir voru sakaðir um að hafa lagt á ráðin um að tryggja erlent fjárframlag – sem er bannað samkvæmt breskum kosningalögum.
Kærðu bandarísk framlög
Umbótaflokkurinn sagði í yfirlýsingu að James Orr og Dan Jukes hefðu stigið til hliðar úr störfum sínum á meðan niðurstöður innri rannsóknar liggja fyrir.
Verkamannaflokkurinn, sem er í stjórn, var meðal þeirra stjórnmálaflokka sem sögðust hafa kært Umbótaflokkinn …