Icelandair hefur þurft að aflýsa sjö flugferðum frá Keflavík á einum sólarhring, þar af fjórum vegna manneklu. Þetta staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, við fréttastofu.
Fyrr í dag var greint frá því að fimm flugferðum Icelandair hefði verið aflýst, þar af tveimur vegna manneklu. Síðan þá hafa tvær flugferðir bæst við.
Þrjár flugferðanna voru til Evrópu og fjórar til Bandaríkjanna. Flugferðirnar sem þurfti að aflýsa vegna manneklu voru til Berlínar, Stokkhólms, Frankfurt og Baltimore.
Icelandair hefur ítrekað þurft að aflýsa flugum undanfarið vegna þess að ekki hefur tekist að manna flugin. Flugmenn og flugvirkjar standa þessa dagana í kjaraviðræðum við félagið.
Félag íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, og Icelandair funduðu hjá ríkissáttasemjara í gær og munu funda aftur að morgni mánudags, annars í hvítasunnu.