Sjálf­stæðis­menn og Fram­sókn í eina sæng í Múla­þingi - Vísir

Sjálf­stæðis­menn og Fram­sókn í eina sæng í Múla­þingi - Vísir

Sjálf­stæðis­menn og Fram­sókn í eina sæng í Múla­þingi - Vísir

Í yfirlýsingu segir að samkvæmt samningnum verði Jónína Brynjólfsdóttir áfram forseti sveitarstjórnar og Berglind Harpa Svavarsdóttir áfram formaður byggðarráðs. Einnig stenudr til að endurnýja samning við Dagmar Ýr Stefánsdóttur um að hún starfi áfram sem sveitarstjóri.

„Ég er afar stolt af því að þessi meirihluti byggi á skýrri framtíðarsýn um öflugt og samheldið Múlaþing þar sem þjónusta, tækifæri og lífsgæði íbúa eru í forgrunni. Öflugir innviðir eru lykillinn að því að fólk og fyrirtæki velji að búa og starfa í sveitarfélaginu og því er mikilvægt að halda áfram markvissri uppbyggingu skóla-, íþrótta- og tómstundaaðstöðu um allt sveitarfélagið. Með góðri samvinnu, trausti og metnaði getum við skapað enn betri aðstæður fyrir fjölskyldur, atvinnulíf og samfélagið allt til framtíðar.“ segir Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar í yfirlýsingunni.

„Ég er afar stolt af því að þessi meirihluti byggi á skýrri framtíðarsýn um öflugt og samheldið Múlaþing þar sem þjónusta, tækifæri og lífsgæði íbúa eru í forgrunni. Öflugir innviðir eru lykillinn að því að fólk og fyrirtæki velji að búa og starfa í sveitarfélaginu og því er mikilvægt að halda áfram markvissri uppbyggingu skóla-, íþrótta- og tómstundaaðstöðu um allt sveitarfélagið. Með góðri samvinnu, trausti og metnaði getum við skapað enn betri aðstæður fyrir fjölskyldur, atvinnulíf og samfélagið allt til framtíðar.“ segir Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar.

Málefnasamninginn má sjá hér að neðan.

Málefnasamningur D- og B- lista í Múlaþingi 2026 - 2030

D- listi Sjálfstæðisflokks og B- listi Framsóknarflokks í Múlaþingi á Austurlandi staðfesta að listarnir mynda saman meirihluta í Múlaþingi, kjörtímabilið 2026 – 2030. Listarnir sameinast um að koma stefnuskrám sínum í framkvæmd eins og þær voru kynntar kjósendum og samkvæmt því samkomulagi sem hér fer á eftir.

Áherslumál eru eftirfarandi:

Fjölskyldu-, íþrótta- og menntamál 

  • Við viljum byggja upp fjölskylduvænt samfélag þar sem öll börn og fjölskyldur fá tækifæri til þátttöku, menntunar og heilbrigðs tómstundastarfs óháð búsetu eða bakgrunni. Lögð er áhersla á að íþrótta- og tómstundastarf sé sameinandi vettvangur fyrir öll börn og að aðgengi sé eins og kostur er. Áfram verði unnið að því að bæta aðgengi fatlaðra barna að íþrótta- og tómstundastarfi.
  • Frístundastyrkur verður hækkaður um að lágmarki. 10.000 krónur á kjörtímabilinu í áföngum og áfram unnið að verkefninu „Allir með“ í samstarfi við íþróttafélög. Sérstakur stuðningur verður veittur börnum sem búa langt frá skipulögðu starfi.
  • Áfram verður unnið að heildstæðri uppbyggingu íþróttamannvirkja og auknum stuðningi við íþróttafélög í góðu samstarfi við hagsmunaaðila. Staða framkvæmdastjóra Hattar og Neista verður fest í sessi og samningar um íþróttamál endurskoðaðir með það að markmiði að fjármagn nýtist sem best. Unnið verður að eflingu íþróttastarfs á Seyðisfirði í samstarfi við Íþróttafélagið Huginn.
  • Lögð er áhersla á öflugt menntakerfi á öllum skólastigum með stöðugleika, fagleg vinnubrögð og velferð barna að leiðarljósi. Börnum verður áfram tryggt leikskólapláss frá 12 mánaða aldri og unnið að lausnum sem mæta bæði þörfum barna og starfsfólks. Kláruð verður endurskoðun á starfsumhverfi leikskóla í samfélagslegri sátt og með sveigjanleika að markmiði. Kanna þarf möguleika á því að aðlaga 12 mánaða börn inn á leikskóla ársfjórðungslega og endurskoða fyrirkomulag sumarlokunar leikskóla.
  • Kannaður verði möguleiki á því að samræma skóladagatöl innan sveitarfélagsins og unnið verði betur að samþættingu skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs til að bæta aðgengi barna, sérstaklega úr dreifbýli. Horft verði til þess að styðja við skólaval nemenda og jafnframt verði farið í skoðun á skilgreiningu skólahverfa.
  • Lögð verður áhersla á eflingu þjónustu við eldra fólk með verkefnum sem stuðla að bættri vellíðan og virkni á efri árum og festa í sessi starf ráðgjafa í málefnum eldra fólks.
  • Gerð verði greining á stöðu eldra fólks í sveitarfélaginu í samstarfi við HSA með því markmiði að ná utan um málaflokkinn.

Umhverfis-, skipulags- og húsnæðismál

  • Við viljum að skipulag sveitarfélagsins sé unnið í nánu samráði við íbúa með það að markmiði að efla lífsgæði, skapa aðlaðandi umhverfi og styðja við öflugt og fjölbreytt atvinnulíf. Unnið verður markvisst að skipulagsmálum um allt sveitarfélagið, meðal annars með því að klára deiliskipulag á suðursvæði Egilsstaða og deiliskipulag fyrir miðbæ Djúpavogs. Endurskoðun verður gerð á athafna- og iðnaðarsvæðum við Miðás og Brúnás á Egilsstöðum með það að markmiði að fjölga lóðum, auk þess sem möguleg landkaup til framtíðaruppbyggingar verða skoðuð. Tryggt verður að ávallt séu til staðar fjölbreyttar lóðir fyrir íbúðar-, atvinnu- og þjónustustarfsemi í öllum byggðarkjörnum sveitarfélags.
  • Áfram verða skoðaðir möguleikar á samstarfi við Bríeti og Brák varðandi uppbyggingu húsnæðis um allt sveitarfélagið.
  • Lögð verður áhersla á áframhaldandi uppbyggingu og endurbætur á húsnæði sveitarfélagsins.
  • Haldið verður áfram markvissri uppbyggingu göngu-, hjóla- og reiðstíga, auk þess sem unnið verður að bættu aðgengi fyrir gangandi og hjólandi með skýrri forgangsröðun í aðgengismálum. Sveitarfélagið skal vera fyrirmynd í umhirðu, ásýnd og umgengni og áfram verður unnið að verkefnum sem fegra og bæta nærumhverfið.
  • Unnið verður að þróun á sorphirðu með því markmiði að mæta þjónustuþörf íbúa.
  • Áhersla verður lögð á áframhaldandi uppbyggingu hafnarmannvirkja, þar á meðal lengingu Strandabakka á Seyðisfirði ásamt breytingum á smábátahöfn og uppbyggingu hafnaraðstöðu á Djúpavogi.
  • Lögð er áhersla á mikilvægi áframhaldandi jarðhitaleitar í öllu sveitarfélaginu til að styrkja innviði og orkuöryggi sveitarfélagsins til framtíðar.
  • Unnin verður forgangsröðun á uppbyggingu íþróttamannvirkja í samráði við íþróttafélög innan sveitarfélagsins.
  • Áfram verði sett skilgreint framkvæmdafé til smærri samfélagsverkefna sem heimastjórnir hafa umsjón með.
  • Stofnað verður hafnarráð Múlaþings og hlutverk heimastjórna gert skýrara í hafnarmálum og þeim gefið meira vægi til umsagna.

Stjórnsýsla, rekstur, atvinnu- og menningarmál

Fjármál og stjórnsýsla

  • Við leggjum áherslu á ábyrga fjármálastjórn, gagnsæja stjórnsýslu og hagkvæman rekstur sem þjónar íbúum sveitarfélagsins. Markmiðið er að einfalda stjórnsýslu, bæta þjónustu og nýta fjármuni sveitarfélagsins með skilvirkari hætti.
  • Unnið skal markvisst að því að lækka skuldir sveitarfélagsins og áframhaldandi lækkun fasteignagjalda. Sérstök áhersla verður lögð á lækkun fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði á kjörtímabilinu í áföngum.
  • Jafnframt verður ráðist í heildstæða greiningu á rekstri sveitarfélagsins með það að markmiði að auka hagkvæmni, bæta nýtingu fjármuna og tryggja betri yfirsýn rekstursins. Innleidd verða ný stafræn kerfi og gervigreind til að styðja við gagnsæi, skilvirkni og bætta þjónustu við íbúa.
  • Farið verður í endurskoðun á fjölda fulltrúa í ráðum, nefndum og sveitarstjórn með því markmiði að einfalda stjórnsýslu og styrkja skilvirkni í ákvarðanatöku.
  • Leitast verði við að tryggja virkt samráð innan stjórnsýslunnar við ungmennaráð, öldungaráð og samráðshóp um málefni fatlaðs fólks sem megin samráðsvettvang sveitarstjórnar við viðkomandi hópa í samfélaginu.
  • Þá verður unnið að því að efla samfélagslega þátttöku allra íbúa með stofnun innflytjendaráðs sem hafi það hlutverk að bæta samskipti milli íbúa og sveitarfélags, stuðla að jafnræði og tryggja betri þjónustu fyrir alla.

Atvinnumál

  • Við viljum byggja upp kraftmikið og fjölbreytt atvinnulíf þar sem tækifæri eru nýtt til fulls og sveitarfélagið sé eftirsóknarverður staður fyrir fólk og fyrirtæki. Áhersla verður lögð á mótun atvinnustefnu og aukið samtal við atvinnurekendur og fjárfesta.
  • Sveitarfélagið mun styðja áfram við fjölbreytta atvinnustarfsemi í dreifbýli, þar á meðal landbúnað, ferðaþjónustu, skógrækt, nýsköpun og matvælaframleiðslu.
  • Mikilvægt er að tryggja öfluga innviði til framtíðar. Jafnframt viljum við nýta tækifæri í orkuframleiðslu og orkunýtingu á ábyrgan og sjálfbæran hátt.
  • Áhersla verður á að opinber störf haldist í sveitarfélaginu og að þjónusta ríkisins sé sem næst íbúum.

Menningarstarfsemi

  • Sveitarstjórn mun styðja við söfn og menningarstofnanir innan sveitarfélagsins og kannaður verði grundvöllur þess að þróa starfsemi með það að markmiði að ná fram hagkvæmni í rekstri og frekari sérhæfingu starfsmanna. Leitast verði við að tryggja nægt fé til markaðssetningar.
  • Áfram verði unnið með menningarstefnu Múlaþings og aðgerðaráætlun verði í sífelldri mótun.
  • Lokið skal við uppbyggingu og standsetningu á Safnahúsinu og aðbúnaður bættur í Sláturhúsinu.
  • Áfram verður unnið að því að bókasöfnin gegni mikilvægu hlutverki sem lifandi samfélagsmiðjur.
  • Finna þarf Ríkharðssafni varanlegt húsnæði og tryggja áframhaldandi stuðning við starfsemi Tækniminjasafns Austurlands og Skaftfell.

Hagsmunabarátta Múlaþings

Þrýst verður á ríkisvaldið varðandi eftirfarandi hagsmunamál:

  • Áfram verður þrýst á nauðsynlegar samgöngubætur innan sveitarfélagsins svo sem Fjarðarheiðargöng og Öxi. Einnig verði áfram þrýst á framkvæmdir við Lagarfljótsbrú og brú yfir Jökulsá á Fjöllum. Áfram verður áhersla á að sækja fjármuni frá ríkinu til uppbyggingar og viðhalds hafnarmannvirkja.
  • Áfram verði þrýst á aukið fjármagn til Vegagerðarinnar til uppbyggingar og viðhalds vega og heimreiða í dreifbýli innan sveitarfélagsins.
  • Áfram verði þrýst á aukið fjármagn til Vegagerðarinnar til eflingar vetrarþjónustu í dreifbýli þannig að tryggja megi eðlilegt aðgengi íbúa dreifbýlis að vinnu og skóla allt árið um kring. Sérstök áhersla verður lögð á vetraropnun alla daga vikunnar á Borgarfjarðarvegi, að Öxi verði færð af G-reglu Vegagerðarinnar.
  • Unnið verður með Isavia og ríkisvaldinu að uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar þannig að hann uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til hans sem fyrsta varaflugvallar Keflavíkurflugvallar. Jafnframt verði hugað að framtíðarmöguleikum vallarins varðandi vöruflutninga og millilandaflug.
  • Við munum áfram berjast fyrir hagsmunum Austurlands með skýrri byggðastefnu að leiðarljósi. Þar vegur þungt að jafna flutningskostnað á raforku, bæta afhendingaröryggi og klára þrífösun rafmagns. Standa þarf vörð um að opinber störf og þjónusta hverfi ekki af svæðinu. Jafnframt verður þrýst á að jöfnun atkvæða bitni ekki á landsbyggðinni.
  • Áhersla verður lögð á að sveitarfélög hafi áfram skipulags- og byggingarvald og að þau fái eðlilegan stuðning til innviðauppbyggingar, meðal annars með endurgreiðslu virðisaukaskatts. Einnig verður þrýst á afnám undanþágu fasteignaskatta af orkumannvirkjum og að frumvarp um lagareldi verði afgreitt samhliða því að Fiskeldissjóður verði lagður niður.
  • Við munum beita okkur fyrir áframhaldandi stuðningi við Loftbrúna. Þrýst verður áfram á ISAVIA um að víkka tímaramma gjaldtöku á bílastæði Egilsstaðaflugvallar.
  • Mikilvægt er að ríkið komi meira til móts við ferðakostnað barna og ungmenna vegna æfinga- og keppnisferða í íþróttum.
  • Áhersla verður lögð á að tryggja fulla fjármögnun í málefnum aldraðra, fatlaðs fólks og grunnskóla, auk þess að efla heilbrigðisþjónustu á svæðinu. Þar verður sérstaklega unnið að aukinni geðheilbrigðisþjónustu með markvissum aðgerðum til að styrkja mönnun og skapa raunverulega hvata til að laða að fagfólk svo sem með aðgerðum á byggðaáætlun.
  • Jafnframt verður barist fyrir fjölgun hvíldar- og sjúkrarýma og áframhaldandi öflugri bráðaþjónustu á HSA Egilsstöðum svo íbúar svæðisins hafi aðgang að öruggri og öflugri heilbrigðisþjónustu nærri heimabyggð.
  • Áhersla verður lögð á öflugt samstarf við Menntaskólann á Egilsstöðum og háskóla landsins. Einnig er mikilvægt að auka enn frekar aðgengi að iðn- og starfsnámi til eflingar atvinnulífsins.

Lögð verður áhersla á að Múlaþing veiti opinberum stofnunum aðhald með það að markmiði að íbúar þess njóti viðunandi þjónustu, kjara og möguleika varðandi t.d. menntun, heilbrigðisþjónustu, samgöngur, orku, fjarskipti og löggæslu.

D- listi Sjálfstæðisflokks og B- listi Framsóknarflokks í Múlaþingi á Austurlandi eru sammála um að leita eftir samningum við Dagmar Ýr Stefánsdóttur, fráfarandi sveitarstjóra Múlaþings um að hún taki að sér starf sveitarstjóra á kjörtímabilinu.

Ábyrgð kjörinna fulltrúa í Múlaþingi er mikil þegar kemur að því að móta hefðir og venjur í tengslum við nýjungar í stjórnskipulagi þess. Fulltrúar B- og D-lista leggja ríka áherslu á mikilvægi góðrar samvinnu og samstarfs innan nýrrar sveitarstjórnar og leitast því við að vinna í þeim anda með fulltrúum allra framboða, Múlaþingi til heilla.

#eina #framsókn #múlaþingi #sjálfstæðismenn #sæng


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262889327d/sjalfstaedismenn-og-framsokn-i-eina-saeng-i-mulathingi

📰 Aðrar fréttir

Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
📅 11.10.2026 👁️ 0
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
Anna Yagi, japönsk kona á fertugsaldri, fannst látin á hótelherbergi í Okinawa í byrjun mánaðarins eftir að hafa verið kyrkt.The Times segir að lögreg...
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 2
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 2
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 3
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 3
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 3
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkyn...
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
Film-maker Sue Kim talks about having unprecedented access to K-Pop idol Lisa Manobal at her most candid.
AI is creating a 'human premium' for art created by people
📅 10.10.2026 👁️ 4
AI is creating a 'human premium' for art created by people
Amid a surge in AI content, many are placing extra value on art that's obviously made by a human. But can that last, asks Ros Atkins
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
📅 10.10.2026 👁️ 4
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
Lizzy, Charlotte and Libby studied at the same time, but their student debt now looks very different.
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
📅 10.10.2026 👁️ 4
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
MPs are seeking to stop immunity applying when police fabricate evidence or are dishonest or negligent.
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
📅 10.10.2026 👁️ 5
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
Að minnsta kosti fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias sem skall á strönd Flórída og Alabama í gærkvöld.Dregið hefur úr krafti Isaias en enn e...
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tímum norrænu byggðarinnar. Sönnunin vær...
Tóku samtalið um land allt
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tóku samtalið um land allt
„Samtalið“ svokallaða fór fram í dag, þar sem fólk hittist, ræddi framtíðina og hvernig samfélag það vill. Verkefnið heitir „Tölum saman“ og varð til ...
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
Hin fimmtuga Pike lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk á miðvikudaginn í síðustu viku í Tennessee í Bandaríkjunum. Hún komst aftur til meðvitu...
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag. Frá þessu greinir AFP-fréttastofan og hefur ...
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tólf manns eru látnir og 309 særðir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag, að sögn flugmálayfirvalda...
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtöku...
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
Nú fást lausasölulyf að jafnaði í apótekum. Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja ákveðin lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apót...
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
📅 10.10.2026 👁️ 4
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
The natural phenomenon, known as the Aurora Borealis, is the result of increased solar activity.
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, segir líflína fólks á Gaza að fólk muni eftir þeim, fjármagni hjálp sem það þurfi og ýti á st...
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af d...
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
Kennarasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í vikunni þar sem sambandið kynnti stefnumótun og áherslur í menntamálum. Kallaði sambandið eftir s...
Mestu skiptir að engan sakaði
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mestu skiptir að engan sakaði
Innan við tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn í álverinu í dag og var kerskáli tekinn úr rekstri á meðan.„Það er ekki vitað að svo stöddu hvað ol...
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag að hann teldi kominn tíma til að Úkraína fengi nýjan forseta. Hann la...
K-kúrfu hagkerfið
📅 10.10.2026 👁️ 4
K-kúrfu hagkerfið
K-kúrfu hagkerfið Verð­bólga var ekki til­kom­in vegna launa og eyðslu neðri hluta K-leggs­ins í hag­kerf­inu, held­ur vegna að­gerða at­vinnu­lífs­in...
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði farið inn á girt svæði klukkan hálf tvö að staðartíma í dag. Í kjölfarið hafi tígrisdýrið ráðist á m...
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
📅 10.10.2026 👁️ 4
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
Hvert einasta sæti var skipað og rúmlega það á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Ræða formannsins og forsætisráðherrans bar heitið Styrk hö...
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
📅 10.10.2026 👁️ 5
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
Roofs were ripped off buildings after Isaias barrelled into the US on Friday evening, before it weakened to a post-tropical cyclone.
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
📅 10.10.2026 👁️ 5
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
Karlmaður er látinn eftir árás tígrisdýrs í dýragarði skammt frá borginni Doncaster í Jórvíkurskíri á Englandi. Lögregla segir manninn hafa farið inn ...
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
Meðal bílastæðanna fimmtán sem verða tekin aftur í notkun eru tvö við Kaffi Babalú á Skólavörðustíg þar sem fréttamaður hitti þær Guðnýju Maríu Jóhann...
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
Lögregla var komin á vettvang aðeins örfáum mínútum eftir að tilkynning barst henni um skothvelli úr íbúðarhúsi. Allir níu voru þegar látnir þegar lög...
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
📅 10.10.2026 👁️ 5
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð á þessum degi fyrir 25 árum. Smári úr Smáraskóla og Linda úr Lindaskóla fengu þann heiður að opna þessa stærstu...
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
📅 10.10.2026 👁️ 5
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
The team en route to the suspected crash site aim finally to solve the mystery of her 1937 disappearance.
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
Um helgina fer fram sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 í Laugardalshöll en fagsýningarfyrirtækið Ritsýn stendur fyrir sýningunni. Hátt í hundrað sýne...
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
📅 10.10.2026 👁️ 5
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
Visitors to Corralejo have a new place to capture their holiday photographs following the installation of a tourist selfie spot made entirely from rec...
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
📅 10.10.2026 👁️ 5
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að Úkraínumenn velji sér annan forseta sem geti bundið enda á stríð landsins við Rússland.Hann er Volodomyr Zelens...
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 5
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrír réðust á einn - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þrír réðust á einn - Vísir
Er þetta meðal þeirra mála sem skráð eru í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því í dag. Líkamsárásin átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar ...
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
📅 10.10.2026 👁️ 4
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
Ukraine's leader had said the deal with Russia to release diesel into the US would help Moscow fund the war.
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
Nokkrar þjóðbúningamessur hafa verið haldnar í sunnlenskum kirkjum síðustu ár og hafa þær heppnast einstaklega vel og margir mætt í þjóðbúningum. Pres...
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
📅 10.10.2026 👁️ 4
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike, 50 ára bandarísk kona sem lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, hefur verið útskrifuð af ...
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
📅 10.10.2026 👁️ 4
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
The visitor attraction near Doncaster was evacuated on Saturday and remains closed for the weekend.
Aníta Briem á von á þriðja barninu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Aníta Briem á von á þriðja barninu
Leikkonan Aníta Briem og Hafþór Waldorff, eiga von á sínu öðru barni saman. Fyrir eiga þau dótturina Lúnu, sem fæddist í nóvember 2024. Parið gekk í g...
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
„Ég eyddi öllu sumrinu á spítala því ég lenti í því að fá ristilpoka sem sprakk og gerði gat á ristilinn á mér, með tilheyrandi sýkingum og veseni. Ég...
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
Frambjóðendur til forseta Alþýðusambands Íslands hafna því að þeir séu fulltrúar ólíkra fylkinga innan sambandsins.Arnaldur Grétarsson, sérfræðingur í...
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
Fjöldi fólks gekk kröfugöngu frá Hlemmi að Austurvelli í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu í dag, 10. október.Í tilkynningu Félagsins Ísl...