Talningu er lokið í öllum sveitarfélögum landsins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur aukið fylgi sitt víða, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. Hér verður stiklað á stóru um úrslitin í stærstu sveitarfélögunum. Allar niðurstöður má sjá á fréttavaktinni sem lifði í alla nótt.
Lokatölur í fjölmennasta sveitarfélaginu, Reykjavík, voru tilkynntar rétt fyrir klukkan fjögur í morgun. Sjálfstæðisflokkurinn vinnur sinn stærsta sigur í höfuðborginni síðan í kosningunum 2010.
Flokkurinn fær 31,8 prósent atkvæða og níu af 23 borgarfulltrúum, bætir við sig þremur. Samfylkingin bíður sitt mesta afhroð í borginni frá upphafi, fær 17,7 prósent atkvæða en heldur þó þeim fimm borgarfulltrúum sem flokkurinn fékk í síðustu kosningum.
Miðflokkurinn, sem náði ekki inn í síðustu kosningum, er þriðji stærsti flokkurinn með 12,4 prósenta fylgi, tíu prósentustigum meira en 2022 og fær þrjá borgarfulltrúa. Þetta er langbesta kosning sem Miðflokkurinn hefur fengið í borgarstjórn. Viðreisn og Vinstrið fá tvo borgarfulltrúa. Framsóknarflokkurinn fær einn líkt og Sósíalistaflokkurinn.
Formenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins voru himinlifandi yfir þeim niðurstöðum sem liggja fyrir í sveitarstjórnarkosningunum.
Formaður Samfylkingarinnar segist hafa viljað sjá betri niðurstöðu á höfuðborgarsvæðinu. Kristín Waage telur ákall eftir hægri sinnaðri borgarstjórn. Hún situr í 3. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík.
Sjálfstæðisflokkurinn er sigurvegari kosninganna í Kópavogi, með hreinan meirihluta í bæjarstjórn og bestu kosningu frá upphafi í bæjarfélaginu. „Ég er auðvitað bara stolt og meyr yfir þessum tölum,“ sagði oddvitinn Ásdís Kristjánsdóttir þegar fyrstu tölur birtust.
Flokkurinn fékk 45,7 prósent atkvæða, sex bæjarfulltrúa, og gerði þar með betur en í kosningunum 2006 þegar hann fékk 45,3 prósent. Samfylkingin fékk tvo bæjarfulltrúa og Miðflokkurinn bætti við sig tæplega átta prósentustigum og náði inn í bæjarstjórn í fyrsta sinn.
Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ bætti verulega við fylgi sitt. Flokkurinn, sem fékk tæplega helming atkvæða fyrir fjórum árum, fékk að þessu sinni 58,0 prósent og átta af ellefu bæjarfulltrúum.
Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og Garðabæjarlistinn fengu hver sinn bæjarfulltrúann. Sjálfstæðismenn eru ekki óvanir því að vera í meirihluta í Garðabæ, sú hefur orðið niðurstaðan í hverjum einustu kosningum frá 1966.
Á Akureyri munaði aðeins sextán atkvæðum á því hvort Sjálfstæðisflokkurinn eða L-listi Bæjarlistans yrði stærstur.
Á endanum höfðu Sjálfstæðismenn vinninginn. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 19,4 prósent og L-listinn 19,3 prósent. Þessir flokkar, líkt og Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn, fengu tvo bæjarfulltrúa hver.
Úrslit liggja fyrir í Mosfellsbæ þar sem Sjálfstæðisflokkurinn stóð uppi sem sigurvegari. Fylgi flokksins fór úr 27 prósentum í 42 prósent og bæjarfulltrúatalan úr fjórum í fimm.
Flokkurinn er nú stærstur í bæjarstjórn Mosfellsbæjar eftir að Framsókn tapaði þriðjungnum af fylgi sínu og tveimur af fjórum bæjarfulltrúum. Miðflokkurinn nær inn fulltrúa í bæjarstjórn. Meirihluti Framsóknar, Samfylkingingar og Viðreisnar er fallinn.
Framsóknarflokkurinn, flokkur Valdimars Víðissonar bæjarstjóra, vann mest á í kosningunum í Hafnarfirði þetta árið. Flokkurinn jók fylgi sitt um tæp ellefu prósent og fær þrjá bæjarfulltrúa í stað tveggja áður.
Sjálfstæðisflokkurinn er enn stærstur en tapaði einum bæjarfulltrúa. Flokkarnir voru saman í meirihluta og geta haldið því áfram vilji þeir það. Samfylkingin tapaði mestu allra flokka, tveimur bæjarfulltrúum og ellefu prósentustigum. Miðflokkurinn náði inn í bæjarstjórn og Viðreisn bætti við sig einum bæjarfulltrúa.
Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar, segir greinilega hægri sveiflu sjást í niðurstöðum víða. Hann segir fylgi flokksins óneitanlega skell.
„Það er ekki vanalegt í pólitík að bera ábyrgð en ég ætla nú að gera það hér. Þetta er meira mín ábyrgð heldur en flokksins. Ég held að þetta séu skilaboð til mín og það að nú eigi ég að hugsa minn gang. Það ætla ég að gera.“
Sjálfstæðisflokkurinn heldur sínum sex fulltrúum í Árborg frá því í kosningum fyrir fjórum árum og er þar með í meirihluta annað kjörtímabilið í röð. Framsókn og Samfylkingin og óháðir héldu sínum bæjarfulltrúum.
Sjálfstæðisflokkurinn stendur uppi sem sigurvegari í Reykjanesbæ. Hann hlaut 39 prósent atkvæða, ellefu prósentum meira en í síðustu kosningum, og fær nú fimm bæjarfulltrúa í stað þriggja áður.
Miðflokkurinn, sem átti litlu fylgi að fagna fyrir fjórum árum, bætti við sig rúmlega níu prósentustigum og fær kjörinn bæjarfulltrúa. Framsókn stendur í stað og Samfylkingin tapar einum.
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn á Akranesi með þriðjung atkvæða og þrjá bæjarfulltrúa. Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin fá tvo bæjarfulltrúa og Viðreisn og Miðflokkurinn einn.
Af 453 kjörnum fulltrúum buðu 125 fram á listum Sjálfstæðisflokks
Sjálfstæðisflokkurinn er allra flokka sterkastur þeirra sem buðu fram undir eigin heiti á sveitarstjórnarstiginu. Af 453 kjörnum fulltrúum buðu 125 fram á listum Sjálfstæðisflokksins og þrír til viðbótar á lista Sjálfstæðisflokksins og óháðra.
Kjörnum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins fjölgaði um 15 og atkvæðahlutfallið jókst um sex prósentustig.
Miðflokkurinn bætti við sig sautján sveitarstjórnarfulltrúum og fékk 22 þetta árið með rúmlega sjö prósentustigum fleiri atkvæði en áður. Viðreisn fékk níu fulltrúa kosna í eigin nafni, fjórum fleiri en fyrir fjórum árum.
Í sjö sveitarfélögum var óbundin kosning, þar sem allir kjörgengir íbúar eru í framboði, og sjálfkjörið var í fjórum.
Listakosning var í fimmtíu sveitarfélögum þar sem 3.156 frambjóðendur gefa kost á sér á 178 listum. Kjörsókn hefur víðast hvar verið betri en í síðustu kosningum. Ítarlegar upplýsingar um niðurstöðu kosninganna er að finna á fréttavaktinni á vefnum.