Sjálfstæðisflokkurinn er mælist í fyrsta skipti í langan tíma stærsti flokkur landsins, í nýrri könnun Maskínu fyrir Sýn. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 25% fylgi en Samfylkingin fylgir fast á eftir með 24,4% fylgi. Miðflokkurinn, sem um tíma mældist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn í könnunum, er í 13,4%. Viðreisn er með 12,7% fylgi. Sósíalistar, Píratar og VG eru með fylgi undir 5% og myndu því ekki ná manni á þing ef kosið væri núna.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur