Sjálfkeyrandi strætisvagn lenti í árekstri við sporvagn í Gautaborg í dag en um var að ræða fyrsta daginn sem vagninn ók um með farþega í sænsku borginni.
Enginn slys urðu á fólki en vagninn hefur verið tekinn úr umferð á meðan gert er við hann og kannað er hvernig slysið bar að garði.
Á reynslutímabili
Talið er að vagninn hafi skyndilega nauðhemlað að ástæðulausu og sporvagninn hafi í kjölfarið ekið aftan á vagninn. Vagnstjóri var um borð í vagninum sem tók við stjórninni eftir áreksturinn.
Samgöngustofnun Svíþjóðar hafði gefið grænt ljóst á það að vagninn myndi aka um með farþega næsta árið á reynslutímabili. Vagninn hafði ekið um farþegalaus frá því í lok marsmánaðar en tók loks við farþegum í dag.