Veður tók að versna í nótt þegar óvenjudjúp lægð nálgaðist landið úr suðri með stormi, roki og mikilli úrkomu. Eins og kunnugt er hefur Veðurstofa Íslands gefið út gular og appelsínugular viðvaranir og varar við afar slæmu ferðaveðri.Að sögn veðurfræðings er mögulegt að 63 ára gamalt loftþrýstingsmet fyrir októbermánuð falli í dag. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands í morgun.
Sjáðu lægðina ganga yfir landið: Gæti slegið met sem hefur staðið í 63 ár