Sir Alex Ferguson, einn besti knattspyrnustjóri allra tíma, gat ekki mætt á verðlaunahátíð sem samtök knattspyrnustjóra stóðu fyrir.
Skotinn hefur yfirleitt mætt á hátíðina en hann hefur verið að glíma við veikindi að undanförnu og var hann t.d. fluttur á sjúkrahús fyrir leik Manchester United og Liverpool á dögunum.
Samkvæmt Richard Bevan, framkvæmdastjóra samtakanna, er Sir Alex á batavegi.
Frank Lampard var valinn stjóri ársins á hátíðinni en undir hans stjórn vann Coventry öruggan sigur í B-deildinni og vann sér inn sæti í ensku úrvalsdeildinni.