Herferðin No Music for Genocide hefur birt opið bréf þar sem kallað er eftir sniðgöngu Eurovision-keppninnar vegna ákvörðunar um að leyfa Ísrael að taka þátt.
Bréfið var unnið í samstarfi við palestínsku samtökin Palestinian Campaign for the Academic & Cultural Boycott of Israel og er undirritað af fjölda þekktra listamanna, þar á meðal Sigur Rós, Brian Eno, Massive Attack, Kneecap, Idles, Mogwai og Macklemore.
Í bréfinu segir að Ísrael hafi nú, þriðja árið í röð, fengið að taka þátt í keppninni þrátt fyrir hernaðaraðgerðir á Gaza, á meðan Rússlandi hafi verið meinuð þátttaka eftir innrásina í Úkraínu.
Undirritaðir segja það skjóta skökku við og skora á ríkisútvarpsstöðvar, flytjendur laga, starfsfólk og áhorfendur að sniðganga keppnina þar til Evrópska útvarpssambandið (EBU) útilokar ísraelska ríkisútvarpið KAN.
📰 Aðrar fréttir