Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir að sögulegu tækifæri hafi verið kastað á glæ þegar Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, ákvað að mynda meirihluta með Viðreisn og Framsókn í stað Miðflokksins.
Hann furðar sig á því að Sjálfstæðisflokkurinn skuli frekar vilja höfða til þeirra sem „styðja ekki flokkinn frekar en þeirra sem gætu unnið með honum að alvöru breytingum“.
Miðflokkurinn bætti við sig töluverðu fylgi á landsvísu. Þrátt fyrir það stefnir í að flokkurinn verði hvergi í meirihluta nema í Reykjanesbæ.
Sigmundur segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ítrekað ákveðið að mynda meirihluta til vinstri. Aðspurður segir hann hugsanlegt að skýringin sé sú að flokkurinn telji sig geta hunsað nýja flokka í von um að þeir lognist út. „Kannski er þetta gamla heilkennið að þá langi að það komi 1999 og nýir flokkar hverfi.“
Hildur Björnsdóttir greindi frá því á blaðamannafundi í dag að hún hefði boðið Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, að gerast stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur.
„Hann mun hafa heyrt af þessu í fréttum og ætlar að velta því fyrir sér á hvaða forsendum þetta er,“ segir Sigmundur. Sé ætlunin að „múlbinda hann“ ætti hann alls ekki að gera það.