Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Sigurð Þórðarson í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals, fjársvik og vopnalagabrot.
Sigurður, sem stundum hefur verið kallaður „Siggi hakkari“, sveik rúmar 28 milljónir frá fjölda fyrirtækja á árunum 2019 til 2021.
Hann játaði brotin skýlaust.
Í mörgum tilfellum þóttist Sigurður vera framkvæmdastjóri ónefndra fyrirtækja, til dæmis með því að framvísa fölsuðum ársreikningum eða öðrum skjölum, og pantaði dýrar vörur sem hann greiddi ekki fyrir.
Samlokugrill, úr og tískufatnaður gerður upptækur
Sigurði er gert að greiða sex fyrirtækjum um sjö milljónir króna. Honum er auk þess gert að greiða tæpar þrjár milljónir í málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns og eina milljón og 400 þúsund krónur í annan sakarkostnað.
Sigurður samþykkti bótakröfurnar en krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa. Vegna þess hve meðferð máls hans dróst lengi er dómurinn skilorðsbundinn.
Dómurinn kveður á um að ýmsir munir Sigurðar, sem má gera ráð fyrir að sé góss svika hans, verði gerðir upptækir. Þar á meðal eru ýmis konar dýr fatnaður frá tískuvörumerkjum, viskí og annað áfengi, raftæki, þar á meðal dróni, húsgögn og hnífar.
Sigurður var dæmdur fyrir vopnalagabrot fyrir að hafa haft sex piparúða, tvær útdraganlegar kylfur og eina rafstuðsbyssu í vörslu sinni.
Brotin þóttu sönnuð með játningu Sigurðar og með gögnum sem lágu fyrir. Við ákvörðun refsingar litu dæmendur til játningar, langs sakaferils hans og hve umfangsmikil og skipulögð brotin voru.
Sigurður hefur áður verið dæmdur fyrir kynferðisbrot, fjársvik, þjófnað, tollalagabrot, umferðarlagabrot, eignaspjöll og fleiri brot.
Hann var dæmdur í sex mánaða fangelsi í Danmörku í mars vegna
skjalafals og fjársvika og í Póllandi var hann dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi, m.a. vegna umferðarlagabrota.