Sex einstaklingar fundust í bíl í höfninni í Helsinki í vikunni en þeir höfðu falið sig í bílnum. Grunur leikur á að ökumaður bílsins hafi reynt að flytja fólkið ólöglega til landsins.
Finnska ríkisútvarpið greinir frá því að fimm þeirra séu frá Erítreu og einn frá Marokkó. Bíllinn kom til hafnar í Helsinki með ferju frá Tallinn í Eistlandi.
Ökumaður bílsins, sem er erlendur ríkisborgari, var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins á miðvikudaginn, grunaður um að hafa skipulagt ólöglega komu þeirra til Finnlands.
Landamæraverðir segja smygl á fólki með þessum hætti vera þekkta leið til að koma fólki inn á Schengen-svæðið. Fólkið komi til Belarús og sé svo flutt þaðan áfram í gegnum ýmis lönd til annarra landa í Evrópu.
Finnsk landamærayfirvöld tilkynntu í síðasta mánuði að eftirlitssveit yrði send til að aðstoða við eftirlit í höfninni og á flugvellinum í Tallinn til að reyna að koma í veg fyrir að föru- og flóttafólk komist með ólöglegum hætti til Eystrasaltslandanna og áfram til annarra landa frá Belarús.