25 hið minnsta særðust í loftárás Rússa á borgina Zaporizhzhia í Úkraínu í gærkvöld. Sex börn særðust í árásinni.
Nokkur heimili og barnaskóli urðu fyrir skemmdum í árásinni. Þá varð vatnsveitukerfi kjarnorkuvers borgarinnar einnig fyrir árásinni. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin segir kælikerfi kjarnakljúfa orkuversins enn vera öruggt.
Úkraínuher beinir árásum að vöruhúsum netverslunarrisa
Úkraínuher gerði drónaárás á vörugeymslu nærri Sankti Pétursborg í nótt. Eldur kviknaði í húsinu og fréttamenn AFP segja reyk hafa lagt yfir borgina.
Staðarmiðlar segja vöruhúsið í eigu rússneska netverslunarrisans Wildberries. Úkraínuher hefur gert fjölda árása á vöruhús fyrirtækisins á síðustu dögum, þar með talið í grennd Moskvu.
Fjöldi Rússa sem býr á afskekktum stöðum, fjarri verslunum, reiðir sig á Wildberries.
Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu hefur sakað fyrirtækið um að versla með margar tegundir íhluta fyrir hergögn.