Bæjarráð samþykkti aðgerðirnar 28. september og bæjarstjórn staðfesti fundargerð ráðsins samhljóða á fundi sínum 7. október.
Áður en nýtt starfsfólk verður ráðið á að leita leiða til að færa starfsfólk til innan bæjarins, endurskipuleggja verkefni og auka samstarf deilda og stofnana. Undanþágur frá banninu verða heimilar þegar þeirra er þörf til að tryggja lögbundna grunnþjónustu og öryggi íbúa.
Greiðslur ráðast af mætingu
Samhliða ráðningar- og yfirvinnubanninu á að lækka greiðslur til bæjarfulltrúa og greiða þeim eftir raunverulegri mætingu á bæjarstjórnarfundi. Markmiðið er að breytingarnar á greiðslunum skili að minnsta kosti sextán prósenta sparnaði.
Meirihluti Sjálfstæðisflokksins telur eðlilegt að kjörnir fulltrúar taki sjálfir þátt í aðhaldsaðgerðunum og horfi til eigin kostnaðar.
Segja tapið hafa numið 411 milljónum
Í bókun fulltrúa Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra kemur fram að tap á rekstri bæjarins og fyrirtækja hans hafi numið 411 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins.
Meirihlutinn segir verðbólgu, háa vexti og hækkandi launa- og rekstrarkostnað hafa gert reksturinn erfiðari. Hann leggur þó áherslu á að ytri aðstæður skýri ekki stöðuna að fullu og að bæjarstjórn beri ábyrgð á að endurskoða eigin rekstur og forgangsröðun.
Skoða rekstur bókasafns og sundlaugar
Einnig hafa verið samþykktar úttektir á rekstri bókasafnsins, sundlaugarinnar og félagsmiðstöðvarinnar Selsins til að kanna möguleika á hagræðingu.
Samkvæmt bókun meirihlutans verður áfram farið yfir rekstur og opnunartíma bókasafns og sundlaugar. Ekki sé hins vegar tilefni til að stytta opnunartíma Selsins frekar að svo stöddu, enda hafi hann þegar verið styttur.
Minnihlutinn gerði athugasemdir við gögn um opnunartíma Selsins og kallaði eftir samráði við ungmennaráð. Þá lagði hann áherslu á að standa vörð um forvarnarstarf fyrir börn og ungmenni.