Lögreglan getur ekki tjáð sig um lögregluaðgerðir sem fara fram á Kársnesinu um þessar mundir, en sérsveitin hefur verið kölluð út til aðstoðar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta staðfestir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri Ríkislögreglustjóra, við mbl.is.
Heimir Ríkarðsson, stöðvastjóri lögreglunnar í Kópavogi og Breiðholti, staðfestir einnig að lögreglan hafi verið kölluð út á Kársnesið.
Á myndunum má sjá að búið er að girða fyrir inngang að blokk á Kársnesinu, þar sem líklegt er að eitthvað hafi gerst.

