Lögreglan á Norðurlandi eystra var kölluð að íbúðarhúsi við Engimýri á Akureyri um klukkan hálf tvö í dag. Sérsveit ríkislögreglustjóra fór einnig á vettvang.
Málið er enn í vinnslu og lögregla gefur hvorki upp hvort einhverjir séu í haldi né hvers vegna lögregla þarfnaðist liðsinnis sérsveitarinnar. Öðrum íbúum hafi þó ekki verið hætta búin.
Frekari upplýsingar verði veittar síðar.