Í myndbandi má sjá konu stíga út úr bíl og henni er svo gert að snúa sér við og leggja lófana á þak bílsins. Í beinu framhaldi hefja sérsveitarmenn að opna hurðar og að því er virðist hefja leit í bílnum en taka ekki neitt út úr honum.
Það má sjá að minnsta kosti fjóra eða fimm menn á myndbandinu og fjöldi sérsveitarbíla, merktra og ómerktra, hefur athafnast á svæðinu í kvöld en ekki liggur fyrir hvað kemur til.
Einar Sigurjónsson, aðstoðarvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi staðfesti í samtali við fréttastofu að það væri lögregluaðgerð í gangi í Hveragerði þar sem að sérsveit komi við sögu. Þá gat hann ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Fréttin hefur verið uppfærð.